Víkingur með fimm stiga forskot eftir sigur í toppslag Smári Jökull Jónsson skrifar 27. júní 2023 21:17 Víkingur er á toppi Lengjudeildar kvenna. Vísir/Pawel Víkingur er kominn með fimm stiga forskot á toppi Lengjudeildar kvenna eftir sigur á HK í toppslag í kvöld.
Fyrir leikinn í kvöld voru Víkingur og HK í tveimur efstu sætum deildarinnar, Víkingur með 19 stig í efsta sæti en HK í öðru sæti með 17 stig. Það var því mikið í húfi í Kórnum í kvöld. Víkingar skoruðu fyrsta mark leiksins í kvöld. Erna Guðrún Magnúsdóttir kom liðinu yfir á 39. mínútu þegar hún skoraði gott mark eftir hornspyrnu. Staðan í hálfleik 1-0. Á 66. mínútu jafnaði Katrín Rósa Egilsdóttir metin fyrir HK þegar hún slapp ein í gegnum vörn Víkinga. Staðan orðin 1-1 og leikurinn í járnum. Á lokamínútunum voru það hins vegar gestirnir úr Víkinni sem voru sterkari. Á 81. mínútu kom Birta Birgisdóttir Víkingum yfir á ný og sex mínútum síðar gulltrygði Bergdís Sveinsdóttir sigurinn fyrir Víkinga þegar hún skoraði úr horni. Spurning er hvort markið verði skráð sem sjálfsmark því boltinn virtist hafa viðkomu í varnarmanni HK. Lokatölur í Kórnum 3-1 og Víkingar eru nú með 22 stig á toppi deildarinnar en HK er áfram í öðru sæti með 17 stig. Fylkir er í þriðja sæti með 16 stig og getur náð öðru sætinu á morgun þegar liðið mætir Gróttu á heimavelli. Frábær mæting var í Kórinn í kvöld en 650 áhorfendur voru á leiknum en það eru helmingi fleiri en mættu á leik KR og KA í Bestu deild karla um síðustu helgi. Upplýsingar um markaskorara eru fengnar af Fótbolti.net
Íslenski boltinn Lengjudeild kvenna Mest lesið Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti „Spiluðum mjög vel í dag“ Enski boltinn Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang Fótbolti Dómara refsað vegna samskipta við Messi Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Körfubolti Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Enski boltinn Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Körfubolti Fleiri fréttir „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Mark Martinez lyfti Inter á toppinn „Eigum skilið að finna til“ Stefnir í alvöru titilbaráttu á Spáni Sjá meira