Innlent

Viðbúnaður vegna lítils háttar elds á Hringbraut

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Hringbraut var lokað á meðan aðgerðum stóð.
Hringbraut var lokað á meðan aðgerðum stóð. Coline Guet

Slökkvilið og lögregla voru kölluð til vegna elds sem kom upp í kompu í fjölbýlishúsi á Hringbraut í Vesturbæ Reykjavíkur. Veginum til austurs er lokað á meðan aðgerðum stendur

Stefán Kristinsson varðstjóri hjá slökkviliðinu segir um lítils háttar eld að ræða og unnið er að reykræstingu sem stendur.

„Þetta er ekki mikið tjón og engin slys á fólki,“ segir Stefán.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×