Innlent

Al­gjör­lega úti­lokað að samningar náist fyrir mánaða­mót

Eiður Þór Árnason skrifar
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. Vísir/Vilhelm

„Ég held að það sé algjörlega útilokað að samningar náist fyrir mánaðamót, ekki nema menn sem eru í samningaviðræðum fyrir hönd vinnandi fólks geri mistök, hraði ferlinu of mikið og gangi að einhverju sem er að okkar viti væri algjörlega óásættanlegt.“

Þetta segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar um stöðu kjarasamningsviðræðna nú þegar innan við tveir sólarhringar eru eftir af nóvembermánuði. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR hefur sömuleiðis sagt í dag að hann telji ólíklegt að gengið verði frá samningum fyrir fimmtudag.

Sólveig Anna segist vilja vera bjartsýn um að skrifað verði undir samninga við Eflingu hratt örugglega en hún vilji einnig vera raunsæ. Samninganefnd verkalýðsfélagsins fer fram á 56.700 króna launahækkun auk fimmtán þúsund króna framfærsluuppbótar í viðræðum sínum við Samtök atvinnulífsins.

Efling, sem hingað til hefur stefnt á samning til þriggja ára, breytti um stefnu í morgun og býður nú skammtímasamning til rúms eins árs.

„Þetta tilboð er sett fram sem viðbragð við málflutningi Samtaka atvinnulífsins á samningafundi sem við sátum í gær, þar sem fram kom með skýrum hætti að raunverulega það eina sem kæmi í veg fyrir það að hægt væri að ganga að kröfugerð okkar væri tímalengdin sem við fórum fram á. Við vildum gera þriggja ára langan samning,“ sagði Sólveig Anna í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.

Eftir það hafi samninganefnd Eflingar komist að þeirri niðurstöðu að það væri ekki grundvallaratriði að gera langan samning heldur frekar að fá góðan samning „án þess að þurfa að eyða endalausum tíma í að vera í átökum um eitthvað sem að öllum líkindum við myndum ekki ná í gegn.“

Sólveig Anna segir þetta hófstilltan samning sem byggi á nálgun Lífskjarasamningsins sem hafi verið góður samningur fyrir verka- og láglaunafólk auk atvinnurekenda.

Hlusta má á viðtalið við Sólveigu Önnu Jónsdóttur í heild sinni í spilaranum.

Vill að horft verði til krónutöluhækkunarinnar

Að sögn formanns Eflingar er farið fram á krónutöluhækkanir í samningnum sem Efling bauð Samtökum atvinnulífsins til að koma í veg fyrir margrómað höfrungahlaup. Til samanburðar kæmu prósentuhækkanir til með að ýta undir misskiptingu þegar launahærri stéttir færu fram á hlutfallslegu sömu hækkun og félagsfólk Eflingar.

„Prósentuhækkanir virka þannig að þau sem fá lægstu launin fá minnst og þau sem fá hæstu launin fá mest. Það auðvitað eykur á stéttaskiptingu og misskiptingu.“

Þessi í stað vonast Sólveig Anna til þess að náist samningar verði miðað við þessa 56.700 krónutöluhækkun þegar önnur stéttarfélög snúi sér að samningaborðinu.

„Með þessu erum við að auka kaupmátt verka- og láglaunafólks, við erum að verja kaupmátt millitekjuhópanna sem er auðvitað líka það sem á að vera sameiginlegt markmið okkar í því ástandi sem nú ríkir. Þannig að ég og samninganefndin höfum skoðað mjög vel þau gögn sem liggja fyrir og okkar afdráttarlausa niðurstaða er sú að þetta er hin rétta og skynsama nálgun,“ segir Sólveig Anna.


Tengdar fréttir

Stefnt á nýjan kjarasamning fyrir mánaðamót

Forystumenn Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins stefna að því að nýjum skammtímakjarasamningi verði lokið fyrir mánaðamót. Formaður VR, sem sleit viðræðum fyrir helgi, er ekki jafn bjartsýnn og telur tilboð Eflingar frá í morgun eðlilegt í ljósi stöðunnar.

Efling gerir SA til­boð um skamm­tíma­samning

Samninganefnd Eflingar - stéttarfélags hefur samþykkt að gera Samtökum atvinnulífsins tilboð um kjarasamning til rúmlega árs. Tilboðið er 56.700 króna flöt krónutöluhækkun á öll laun og 15 þúsund króna framfærsluuppbót til viðbótar. Þessar hækkanir komi til framkvæmda frá 1. nóvember 2022. Samningur gildi til 31. janúar 2024.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×