Erlent

Allir starfs­menn jafnréttisaðgerða sendir í leyfi fyrir lok dags

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Gagnrýnendur DEI vilja að aðeins sé horft til getu starfsmanna en ekki annarra þátta, til að mynda kyns eða kynþáttar.
Gagnrýnendur DEI vilja að aðeins sé horft til getu starfsmanna en ekki annarra þátta, til að mynda kyns eða kynþáttar. Getty

Ný stjórnvöld vestanhafs hafa fyrirskipað öllum yfirmönnum ráðuneyta og stofnana að setja alla starfsmenn sem hafa starfað að málum er varða fjölbreytni, jafnrétti, inngildingu og aðgengi (DEI eða DEIA) í leyfi, fyrir lok dagsins í dag. 

Segja á starfsfólkinu upp fyrir lok mánaðar.

Stofnunum hefur einnig verið gert að yfirfara vefsíður sínar og taka niður alla umfjöllun um aðgerðir eða úrræði í þágu fjölbreytni, jafnréttis, inngildingar og aðgengis. Þá ber þeim að upplýsa alla þá sem starfað hafa að slíkum málum að skrifstofum þeirra verði lokað.

Samkvæmt New York Times verður gerð krafa um að starfsmenn verði yfirheyrðir um mögulegar aðgerðir eða úrræði sem kunna að fara huldu höfði í kerfinu undir „dulnefni“ eða ónákvæmu orðalagi.

Fyrirskipunin er í samræmi við forsetatilskipun sem Donald Trump undirritaði sama dag og hann sór embættiseið sem 47. forseti Bandaríkjanna á mánudag. Þar kvað hann á um að leggja ætti niður allar aðgerðir er vörðuðu fjölbreytni og inngildingu.

Þá undirritaði forsetinn aðra tilskipun í gær þar sem hann hvatti almenna vinnumarkaðinn að gera slíkt hið sama og binda enda á „ólöglega mismunun á grundvelli DEI“. Þá skipaði hann stofnunum að rannsaka hvort fyrirtæki og félagasamtök færu eftir lögum um almenn borgaraleg réttindi.

DEI stendur fyrir „diversity, equity, inclusion“ og stundum er A-i bætt við fyrir „accessibility“. DEI aðgerðir og úrræði snúast þannig um að horfa til fjölbreytni, til dæmis hvað varðar kynþátt, kynhneigð og aldur, að koma jafnt fram við alla og hvetja til menningar þar sem hlustað er á allar raddir.

Úrræðin hafa hins vegar verið gagnrýnd, meðal annars af Trump og stuðningsmönnum hans, fyrir að gera upp á milli einstaklinga á röngum forsendum. Segja gagnrýnendur DEI úrræði í raun grafa undan jafnrétti með því að horfa til annarra þátta en framlaga einstaklingsins til vinnustaðarins.

Þannig hafi frekar verið horft til meðfæddra þátta, til dæmis kyns og kynþáttar,  í stað raunverulegrar getu.

New York Times fjallar ítarlega um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×