Amanda og Emelía á skotskónum | Rosengård á toppinn Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 16. september 2022 18:00 Amanda Andradóttir skoraði fyrir Kristanstad í kvöld. VÍSIR/HULDA MARGRÉT Íslendingaliðin Kristianstad og Rosengård unnu bæði sína leiki í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld og eru því áfram í efstu tveimur sætum deildarinnar. Amanda Andradóttir og Emelía Óskarsdóttir voru á skotskónum hjá Kristianstad.
Amanda kom Kristianstad yfir eftir aðeins tólf mínútna leik er Íslendingaliðið fékk Hammarby í heimsókn. Rétt fyrir lok fyrri hálfleiks kom Emelía inn af varamannabekknum en hún átti eftir að setja mark sitt á leikinn í síðari hálfleik. Tabby Tindell kom Kristianstad tveimur mörkum yfir snemma í síðari hálfleiks og hún lagði svo upp þriðja mark liðsins sem Emelía skoraði. Emelía var svo tekin af velli áður en Hammarby minnkaði muninn í blálokin á meðan Amanda spilaði allan leikinn. Lokatölur 3-1 og lið Elísabetar Gunnarsdóttur heldur enn í vonina um að skáka Guðrúnu Arnarsdóttur og stöllum hennar í meistaraliði Rosengård. Meistararnir lentu í kröppum dansi gegn Kalmar í kvöld en gestirnir komust tvívegis yfir í fyrri hálfleik en alltaf kom Rosengård til baka og staðan jöfn 2-2 í hálfleik. Í síðari hálfleik skoraði heimaliðið fjögur mörk og vann á endanum öruggan 6-2 sigur. Guðrún lék allan leikinn í miðri vörninni. Með sigrinum helst munurinn á toppinum enn þrjú stig en Rosengård er með 48 stig þegar sex umferðir eru eftir á meðan Kristianstad er með 45 stig.
Fótbolti Sænski boltinn Mest lesið Rashford við það að ganga í raðir Aston Villa Fótbolti FH fær markahæsta Selfyssing sögunnar Handbolti Hákon lagði upp og Lille stökk upp um tvö sæti Fótbolti Grein Morgunblaðsins til skammar Sport Grátlegt tap í framlengdum leik Körfubolti Ísak Bergmann með mark að hætti pabba síns Fótbolti Snorri Steinn um ummæli Gísla: „Auðvitað ertu vonsvikinn“ Handbolti Madrídingar misstigu sig gegn fallbaráttuliði Espanyol Fótbolti Loksins brosti Dagur Sigurðsson Handbolti Sigurganga Metzingen stöðvuð í Íslendingaslag Handbolti Fleiri fréttir Rashford við það að ganga í raðir Aston Villa Hákon lagði upp og Lille stökk upp um tvö sæti Madrídingar misstigu sig gegn fallbaráttuliði Espanyol Úlfarnir héldu út og fjarlægjast fallsvæðið Botnliðið vann mikilvægan sigur og Everton fór illa með Refina Kane með tvö mörk þegar Bæjarar sluppu með skrekkinn Hafdís Nína með þrennu í stórsigri á Færeyjum Salah sá um sjóðheita Bournemouth-menn Elanga og Wood með þrennur þegar Forest skoraði sjö mörk Ísak Bergmann með mark að hætti pabba síns Cecilía Rán hélt markinu hreinu í áttunda sinn Berglind Björg strax byrjuð að skora fyrir Blika Neymar fær að spila í treyjunni hans Pele Freyr fagnaði sigri í fyrsta leiknum með Brann Guy Smit frá KR til Vestra Ensk landsliðskona sakar Man City um mannorðsmorð Ekki hrifinn af tvöfaldri sekt frá KSÍ: „Af hverju að gera það?“ Gefa Gaza allan gróðann af leik á móti ísraelsku félagi Sér eftir sinni hegðun og ætlar að vera áfram hjá Ajax Elías skoraði og Stefán lagði upp Íslandsmeistararnir unnu Þungavigtarbikarinn Lagði upp mark í fyrsta leiknum í Póllandi Sannfærður um að Watkins fari ekki frá félaginu Karólína skoraði stórkostlegt mark og lagði annað upp Sara Björk lagði upp í stórsigri Vigdís Lilja seld til Anderlecht Þjálfari fékk þriggja leikja bann fyrir að sparka í James Rodríguez KR vann fertugasta Reykjavíkurmeistaratitilinn annað árið í röð Orri og Elías í einvígi um að mæta ensku stórliði Tveir íslenskir Nökkvar í Rotterdam Sjá meira