Fótbolti

Liver­pool þarf að stöðva „Kvara­dona“ ef það ætlar heim með stig

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Khvicha Kvaratskhelia ætlar sér að hrella varnarlínu Liverpool í kvöld.
Khvicha Kvaratskhelia ætlar sér að hrella varnarlínu Liverpool í kvöld. EPA-EFE/Riccardo Antimiani

Meistaradeild Evrópu í fótbolta er farin á fullt á nýjan leik og verður leikur Napoli og Liverpool sýndur beint á Stöð 2 Sport 2 í kvöld. Gestirnir frá Bítlaborginni þurfa að stöðva manninn sem kallaður er „Kvaradona“ ætli þeir sér heim með stig eða þrjú í farteskinu.

Liverpool hefur byrjað tímabilið nokkuð brösuglega en liðið situr sem stendur í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 9 stig að loknum sex leikjum. Á sama tíma er Napoli í 2. sæti með 11 stig að loknum fimm leikjum.

Vissulega verður forvitnilegt að sjá hvernig framlína Liverpool spjarar sig á Ítalíu í kvöld en maðurinn sem öll augu verða á mun leika í blárri treyju heimamanna. Sá heitir Khvicha Kvaratskhelia, er 21 árs gamall og kemur frá Georgíu. Hann gekk í raðir Napoli í sumar og hefur spilað það vel að hann hefur hlotið viðurnefnið „Kvaradona.“ 

Þar er verið að vitna í  Diego Armando Maradona heitinn, einn albesta og skemmtilegasta knattspyrnumann allra tíma. Hann lék með Napoli frá 1984 til 1991.

„Ég kemst ekki nálægt Maradona en ég mun gefa allt sem ég á til að verða mikilvægur leikmaður hjá þessu stóra félagi,“ sagði „Kvaradona“ um samanburðinn. Hann hefur til þessa spilað fimm leiki í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni, og skorað fjögur mörk ásamt því að leggja upp eitt til viðbótar. 

Georgíumaðurinn hefur aldrei spilað í Meistaradeild Evrópu en ef allt er eðlilegt mun hann hefja leik kvöldsins á vinstri vængnum og verður einkar áhugavert að sjá hvernig Trent Alexander-Arnold mun ganga að stöðva þennan lunkna vængmann.

Leikurinn hefst klukkan 19.00 og verður í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sport 2. Að leik loknum mun Meistaradeildarstúkan fara yfir allt það helsta sem gerðist í deild þeirra bestu í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×