Fótbolti

Brynjólfur á skotskónum í sigri

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Brynjólfur Willumsson í landsleik með U21.
Brynjólfur Willumsson í landsleik með U21. Getty

Nokkrir íslenskir knattspyrnumenn voru að ljúka helgarverkefnum sínum nú í kvöld.

Í norsku úrvalsdeildinni fóru fram sex leikir en aðeins tveir íslenskir leikmenn komu við sögu.

Brynjólfur Andersen Willumsson skoraði eitt mark þegar lið hans, Kristiansund, vann 3-1 sigur á Sandefjord. Brynjólfur var í byrjunarliði en var skipt af velli seint í leiknum.

Patrik Sigurður Gunnarsson stóð á milli stanganna hjá Viking Stavanger sem tapaði 4-1 fyrir Rosenborg.

Í Grikklandi lék Sverrir Ingi Ingason allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá PAOK sem gerði markalaust jafntefli við Aris þar sem tvö rauð spjöld fóru á loft í uppbótartíma, eitt á hvort lið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×