Erlent

Meðalfjöldi greindra á dag 300 í þarsíðustu viku en í gær greindist 8.561

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Íbúar Jóhannesarborgar bíða bólusetningar.
Íbúar Jóhannesarborgar bíða bólusetningar. AP/Shiraaz Mohamed

Covid-19 tilfellum í Suður-Afríku hefur fjölgað verulega síðustu tvær vikur og en fjöldinn fór úr 300 að meðaltali á dag í þarsíðustu viku, í 1.000 í síðustu viku og stendur nú í um 3.500. 

Þá greindust 8.561 með Covid-19 í gær.

Michelle Groome, yfirmaður eftirlits og viðbragða hjá sóttvarnastofnun landsins, segir aukninguna áhyggjuefni. Samkvæmt gögnum frá stofnuninni (NICD) reyndist um hið nýja Omíkron-afbrigði að ræða í 74 prósent þeirra sýna sem voru erfðagreind í nóvember.

Mörgum spurningum er ósvarað um afbrigðið en vísindamenn NICD telja að þau bóluefni sem notast er við í dag muni veita vörn gegn alvarlegum veikindum og dauða. Uğur Şahin, einn vísindamannanna á bakvið bóluefni Pfizer og BioNTech, er á sama máli og segir bóluefnið líklega munu veita góða vörn gegn alvarlegum veikindum.

Suður-Kórea hefur bæst í hóp þeirra ríkja sem hafa gripið til ferðatakmarkana vegna kórónuveirunnar á undanförnum dögum en í gær greindist metfjöldi í gær; fleiri en 5.200. Þá hefur sjúklingum með alvarleg einkenni fjölgað. 

92 prósent þjóðarinnar eru fullbólusett.

Í Evrópu sagði Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, að ríki álfunnar ættu að vona hið besta en undirbúa sig undir hið versta. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur hvatt ríki heims itl að gera meira til að dreifa bóluefnum til allra en svo lengi sem veiran fái að fara um meðal óbólusettra muni ný afbrigði skjóta upp kollinum.


Tengdar fréttir

Meiri aðsókn í örvunarbólusetningu í þessari viku

Þriðja vika örvunarbólusetningarátaksins fór vel af stað í vikunni en um 20 þúsund manns fengu örvunarskammt í vikunni. Framkvæmdasjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðinu segir mætinguna hafa verið vonum framar og bíður spennt eftir næstu viku. 

Omíkron greinst í tólf löndum EES

Nýtt afbrigði kórónuveirunnar, omíkron, hefur greinst í tólf löndum Evrópska Efnahagssvæðisins. Fimmtíu og sjö einstaklingar hafa greinst smitaðir af veirunni en allir eru þeir með væg einkenni Covid-19. 

Elstu tilvik Omíkron í sýnum í Hollandi

Omíkron-afbrigði kórónuveirunnar dreifist nú hratt um heimsbyggðina en í morgun var tilkynnt um að fyrstu tilfellin hefðu verið staðfest í Brasilíu og Japan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×