Innlent

Ó­­­sam­­mála gagn­rýni dómarans um skort á hlut­lægni

Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar

Lögregla er ósammála því sem héraðsdómari hélt fram í gær um að hún hefði ekki gætt hlutlægni í rannsókn sinni í Rauðagerðismálinu. Þeir þrír sem voru grunaðir um samverknað við morðið voru allir sýknaðir.

Það vakti undrun margra þegar dómurinn í Rauðagerðismálinu féll í gær og fram kom að enginn hefði veriðsakfelldur nema Angjelin Sterkaj, sem hafði játað á sig morðið.

Prófessor í afbrotafræði við Háskóla Íslands sagði til dæmis í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag að ljóst væri að þremenningarnir hefðu aðstoðað Angjelin við morðið og meðal annars hjálpað honum að dylja slóð þess.

Hann velti því upp hvort skerpa þyrfti á lagaákvæðum um samverknað í manndrápsmálum.

Guðjón Marteinsson héraðsdómari taldi lögreglu hins vegar ekki hafa fært sönnur á að þetta fólk hafi í raun vitað að það væri þátttakendur í morði og sagði rannsóknina á þeim meðal annars hafa verið byggða á huglægu mati lögreglunnar.

Þar vísaði dómarinn í skýrslu sem lögregla lagði fram í málinu, sem var samantekt á rannsókn þess.

Hann sagði lögregluna ekki hafa gætt meginreglu um hlutlægnisskyldu sína sem henni bar að gera og sagði það ámælisvert.

Viss um hlutleysi lögreglumannanna

Yfirlögregluþjónn segir að lögregla muni kafa ofan í dóminn og sjá hvað betur hefði mátt fara við rannsóknina.

En gætti lögregla ekki hlutleysis við rannsóknina?

„Jú, ég tel það nú vera. Að það hafi verið gætt hlutleysis og hlutlægni verið viðhöfð í hvívetna. En þetta er mat dómarans og við tökum það til skoðunar,“ segir Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Hann segist ekki vita hvað liggur til grundvallar að mati dómarans.

Ekki óvenjulegt að dómari gagnrýni lögreglu

En taldi Grímur þá sekt hinna þriggja nægilega vel sannaða af hálfu lögreglu?

„Ég vil bara svara því þannig að ákæruvaldið telur meiri líkur en minni þegar það ákærir að það verði sakfellt. Og ég hef ekki neinar aðrar skoðanir á því heldur en það að ég met bara og virði mat ákæruvaldsins,“ segir hann.

Hann segir það ekki endilega óalgengt að dómari gagnrýni störf lögreglu í dóm sínum.

Næstu skref séu að skoða dóminn betur.

„Og við gerum það og horfum til þess hvað við getum lært af því. Og eins og ég sagði í upphafi - við rýnum hann til gagns,“ segir Grímur.


Tengdar fréttir

Angjelin dæmdur í sextán ára fangelsi

Angjelin Sterkaj var dæmdur í sextán ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir að hafa myrt Armando Beqirai, fjölskylduföður á fertugsaldri, með því að skjóta hann fyrir utan heimili sitt í Rauðagerði um miðjan febrúar.

Lögmaður Antons harðorður: „Mesta klúður sem ég hef séð“

Steinbergur Finnbogason lögmaður vill meina að rannsókn lögreglu á Rauðagerðismálinu sé eitt það mesta klúður sem hann hefur orðið vitni að. Hann boðar skaðabótamál fyrir hönd Antons Kristins Þórarinssonar, skjólastæðins síns.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×