Fótbolti

Hallbera hafði betur í Íslendingaslag

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Hallbera í leik gegn Svíum á Laugardalsvelli í undankeppni EM.
Hallbera í leik gegn Svíum á Laugardalsvelli í undankeppni EM. vísir/vilhelm

AIK tók á móti Växjö í sænsku úrvlsdeildinni í knattspyrnu í dag. Hallbera Guðný Gísladóttir bar fyrirliðabandið fyrir AIK, en Andrea Mist Pálsdóttir sat á varamannabekk Växjö. Mark á lokamínútum leiksins tryggði AIK 1-0 sigur.

Nokkuð jafnræði var með liðunum, en hvorugu liðinu tókst að koma boltanum yfir marklínuna í fyrri hálfleik og staðan því 0-0 þegar gengið var til búningsherbergja.

AIK ógnaði marki gestanna meira í seinni hálfleik og það skilaði sér loksins á 88. mínútu þegar að Jenny Danielsson tryggði liðinu 1-0 sigur.

Sigurinn lyftir AIK upp í tíunda sæti, en liðið hefur nú fengið 16 stig í 18 leikjum. Växjö er á botni deildarinnar með aðeins fimm stig, tíu stigum frá öruggu sæti þegar aðeins 12 stig eru eftir í pottinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×