Innlent

Bein útsending: Ráðherra ræðir tilslakanir innanlands

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Svandís Svavarsdóttir ræðir væntanlega við blaðamenn að loknum ríkisstjórnarfundi.
Svandís Svavarsdóttir ræðir væntanlega við blaðamenn að loknum ríkisstjórnarfundi. Vísir/Vilhelm

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra er mætt á reglulegan þriðjudagsfund ríkisstjórnarinnar í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu.

Þar hófst fundur klukkan 9:30. Reikna má með því að á dagskrá fundarins séu tillögur Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis um tilslakanir innanlands.

Þórólfur skilaði ráðherra enn einu minnisblaðinu á dögunum þar sem hann leggur til tilslakanir. Sú reglugerð sem nú er í gildi með tilliti til aðgerða innanlands rennur út á föstudaginn.

Samkvæmt heimildum fréttastofu leggur Þórólfur meðal annars til að 500 megi koma saman og að opnunartími skemmtistaða verði lengdur.

Vísir verður í beinni útsendingu frá Tjarnargötu í spilaranum hér að neðan auk þess sem boðið verður upp á textalýsingu.

Uppfært klukkan 11:47

Stærstu breytingarnar eru þær að 500 mega koma saman í stað 200, skemmtistaðir mega hafa opið klukkustund lengur og halda má viðburði fyrir 1500 manns með notkun hraðprófs.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×