Innlent

Lárus Sigurður tekur við for­mennsku í Garð­yrkju­fé­laginu

Atli Ísleifsson skrifar
Lárus Sigurður Lárusson.
Lárus Sigurður Lárusson. Aðsend

Lárus Sigurður Lárusson var kjörinn nýr formaður Garðyrkjufélags Íslands á aðalfundi félagsins í gærkvöld.

Í tilkynningu kemur fram að hann taki við fráfarandi formanni, Ómari Valdimarssyni, sem muni þó áfram sitja í ritnefnd Garðyrkjuritsins.

„Ný í stjórn hlutu kosningu þau Konráð Lúðvíksson og Þóra Þórðardóttir en nýir varamenn voru kjörnir þeir Gísli Tryggvason og Sigurbjörn Einarsson. Áfram sitja í stjórn félagsins þau Guðríður Helgadóttir, Eggert Aðalsteinsson og Kristján Friðbertsson.

Nýr formaður félagsins, Lárus Sigurður, starfar sem lögmaður alla jafna. Hann er einnig formaður stjórnar Menntasjóðs námsmanna og hefur sinnt ýmsum félags- og trúnaðarstörfum í gegnum tíðina. Hann er giftur Sævari Þór Jónssyni, lögmanni og MBA, og saman eiga þeir einn son.

Garðyrkjufélag Íslands er eitt af elstu félagasamtökum landsins, stofnað árið 1885. Félagið hefur starfað óslitið í 136 ár og á þeim tíma staðið fyrir öflugri fræðslu- og útgáfustarfsemi, þ.m.t. útgáfu Garðyrkjuritsins. Félagið starfrækir bæði bóksölu og bókasafn, sem geymir fjölda bóka sem margar hverjar eru ófáanlegar annars staðar. Þá rekur félagið einnig fræbanka sem aðgengilegur er á heimasíðu félagsins,“ segir í tilkynningunni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×