Innlent

Uppnám í Áslandinu undir miðnætti þegar maður sást með skammbyssu

Jakob Bjarnar skrifar
Eins og sjá má gekk mikið á í Áslandinu í Hafnarfirði undir miðnætti í gær en þá leitaði lögreglan vopnaðs manns sem sést hafði fara um vopnaður skammbyssu. Ekkert fannst þó og ekki liggur fyrir hvort um alvöru vopn var að ræða.
Eins og sjá má gekk mikið á í Áslandinu í Hafnarfirði undir miðnætti í gær en þá leitaði lögreglan vopnaðs manns sem sést hafði fara um vopnaður skammbyssu. Ekkert fannst þó og ekki liggur fyrir hvort um alvöru vopn var að ræða.

Lögreglu barst í gærkvöldi tilkynning um mann sem sagður var fara um hverfið vopnaður á vespu, eða litlu vélhjóli. Hún brást skjótt við og mætti sérsveitin til leiks og lokaði hverfinu.

Þetta var undir miðnætti í gær og voru íbúar órólegir ekki síst vegna þess að sérsveitin hafði engan meintan óbótamann með sér af vettvangi.

Sævar Guðmundsson aðalvarðstjóri segir í samtali við Vísi að lögreglan hafi fengið tilkynningu sem var frá krökkum, þá í gegnum foreldra, um að þar færi maður um vopnaður skammbyssu við Áslandsskóla.

Sérsveitin lokaði hverfinu og leitaði byssumannsins. Haft var afskipti af tveimur piltum á vespum en annar þeirra var vopnaður kylfu og með hnúajárn; greinilega til í hvað sem var.

„Þá verður til þetta viðbragð hjá okkur samkvæmt verklagsreglum. Við fórum um hverfið með sérsveit og höfðum afskipti af tveimur piltum á vespum. Niðurstaðan var að ekkert skotvopn fannst hvorki á þessum tveimur né nokkrum öðrum,“ segir Sævar.

Ekkert skotvopn fannst en annar þeirra pilta var með kylfu og hnúajárn.

„Greinilega til í hvað sem var. En ekkert skotvopn fannst og þannig endaði þetta. Ekkert víst að þeir hafi verið með skotvopn og kannski hefur það verið einhver allt annar.“

Sævar segir að vitaskuld bregðist lögreglan við þegar tilkynning sem þessi kemur en ekki er vitað hvort um var að ræða alvöru vopn, platvopn eða ekkert vopn. Enginn botn er kominn í þá athugun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×