Héldu hreinu í 57 mínútur með aðeins sjö leikmenn inni á Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. apríl 2021 10:00 Sjö leikmenn Rionegro Aguilas sýndu hetjulega baráttu gegn Boyaca Chico. getty/Gabriel Aponte Aðeins sjö leikmenn voru í byrjunarliði Rionegro Aguilas gegn Boyaca Chico í kólumbísku úrvalsdeildinni í gær. Á endanum þurfti þó að flauta leikinn af.
Alls voru 22 leikmenn fjarverandi hjá Rionegro Aguilas, þar af sextán vegna kórónuveirunnar. Þrátt fyrir það fékk liðið ekki að fresta leik gegn Boyaca Chico í gær. Reglur kólumbíska knattspyrnusambandsins kveða á um að lið þurfi að spila þótt aðeins sjö leikmenn séu leikfærir. Annars eigi liði yfir höfði sér háa sekt. Rionegro Aguilas byrjaði því aðeins með sjö leikmenn inn á gegn fullskipuðu liði Boyaca Chico. Rionegro Aguilas var með einn nýliða í byrjunarliðinu og varamarkvörður liðsins fékk það hlutverk að spila í miðri vörninni. Þrátt fyrir allt stóðu sjö leikmenn Rionegro Aguilas sig vel og þrátt fyrir að vera fjórum mönnum fleiri tókst Boyaca Chico ekki að skora í fyrri hálfleik. Stíflan brast loksins á 57. mínútu og Boyaca Chico bætti svo tveimur mörkum við. Þegar ellefu mínútur voru eftir var leikurinn svo flautaður af þegar einn leikmanna Rionegro Aguilas meiddist. Þá voru aðeins sex leikmenn eftir í liði Rionegro Aguilas og leik sjálfhætt.
Fótbolti Kólumbía Mest lesið Moldrík og virðist ætla að umturna kvennafótbolta Fótbolti Umtalað samband við eldri konu talið hafa spillt fyrir Körfubolti Ronaldo staðfestir að Evrópumótið í ár verði hans síðasta Fótbolti „Takk fyrir að berjast alltaf fyrir okkur stelpunum“ Íslenski boltinn Paul Pogba ekki hættur: „Ég mun berjast, fyrir sjálfan mig, gegn þessu óréttlæti“ Fótbolti „Líklega besti leikur lífs míns“ Fótbolti „Geri mér alveg grein fyrir því að þetta sé á einhvern hátt umdeilt“ Handbolti Fyrstur í sögunni til að verja þrjár vítaspyrnur í sama EM-leiknum Fótbolti Bandaríkin úr leik á Copa América og á leið í „djúpa naflaskoðun“ Fótbolti McLaren vill að Verstappen verði refsað: Allur heimurinn veit hver er sá seki Formúla 1 Fleiri fréttir Telma ekki efst þrátt fyrir að fá varla á sig mark Gerðu misheppnaða tilraun til að vekja Austurríkismenn með flugeldum Undrabarnið Gray til Tottenham Caldentey fer frá Evrópumeisturum Barcelona til Arsenal Moldrík og virðist ætla að umturna kvennafótbolta Fyrstur í sögunni til að verja þrjár vítaspyrnur í sama EM-leiknum Paul Pogba ekki hættur: „Ég mun berjast, fyrir sjálfan mig, gegn þessu óréttlæti“ Ronaldo staðfestir að Evrópumótið í ár verði hans síðasta Bandaríkin úr leik á Copa América og á leið í „djúpa naflaskoðun“ Feluleikurinn skilaði sigurmarki á síðustu stundu „Takk fyrir að berjast alltaf fyrir okkur stelpunum“ „Líklega besti leikur lífs míns“ Hinn fullkomni leikur hjá Nico Williams Man Utd horfir enn á ný til fyrrum lærisveins Ten Hag Diogo Costa varði þrjú víti í vító og Portúgalar mæta Frökkum De Bruyne: Of snemmt til að svara því Glódís Perla og hinar stelpurnar mældar í bak og fyrir Sjáðu sjálfsmarkið sem kom Frökkum í átta liða úrslit Aftur vinna Frakkar á sjálfsmarki og nú skilar það þeim í átta liða úrslit Ólíklegt að Bellingham fái leikbann Ísböð á nóttunni og alltaf tilbúinn að gefa góð ráð Chelsea fær framherja frá Barcelona og Earps til PSG Hlynur Freyr á leið til Svíþjóðar Borga yfir þrjátíu milljarða fyrir þrjú ár framan á búningum Rauðu djöflanna Fagnaði markinu með því að þykjast kasta vatnsbrúsa Skilur við Jamaíka í góðu og telur liðið á betri stað nú en þegar hann tók við Keane um Mainoo: „Er að gera hluti sem tók mig tíu ár að læra“ Bellingham í hættu á að vera sektaður fyrir klámfengin fagnaðarlæti Pogba og Matuidi verða heiðursgestir Frakka gegn Belgíu Manchester United hefur gengið frá kaupum á yfirmanni knattspyrnumála Sjá meira