Innlent

Drengur varð undir vöru­bif­reið

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Drengurinn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild.
Drengurinn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild. Vísir/Vilhelm

Umferðarslys átti sér stað á Akranesi í dag þar sem 11 ára gamall drengur á reiðhjóli varð undir vörubifreið.

Þetta kemur fram í stuttri tilkynningu frá lögreglunni á Vesturlandi.

Þar kemur einnig fram að samkvæmt læknum sé drengurinn ekki mikið slasaður og ekki í lífshættu.

Drengurinn var fluttur á slysadeild með sjúkrabifreið. Rannsókn lögreglu á slysinu stendur nú yfir.

Umferðarslys átti sér stað á Akranesi í dag þar sem 11 ára gamall drengur á reiðhjóli varð undir vörubifreið. Samkvæmt...

Posted by Lögreglan Vesturlandi on Tuesday, 16 March 2021



Fleiri fréttir

Sjá meira


×