Innlent

Ellefu konur og tveir karlar leggja línurnar varðandi kynfræðslu barna

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Lilja Alfreðsdóttir skipaði hópinn sem á að skila tillögum í febrúar.
Lilja Alfreðsdóttir skipaði hópinn sem á að skila tillögum í febrúar. Vísir/Vilhelm

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað starfshóp um eflingu kynfræðslu í skólum. Ellefu konur og tveir karlar skipa hópinn en í tilkynningu frá ráðuneytinu kemur fram að þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir ráðuneytisins hafi ekki tekist að jafna kynjahallann.

Þar segir jafnframt að ráðherra hafi boðað til fundar með aðilum sem hafa látið sig málefnið varða í kjölfar umræðu í samfélaginu og ábendingu frá nemendum. Niðurstaða fundarins var að starfshópur myndi koma með tillögur að aðgerðum hið fyrsta. 

Sólborg Guðbrandsdóttir, sem heldur úti Instagram-síðunni Fávitar, leiðir starfshópinn sem á að skila áfangaskýrslu með kostnaðarmetnum og tímasettum aðgerðartillögum fyrir lok febrúar og ljúka störfum í lok maí 2021

Starfshópnum er m.a. falið að:

• gera tillögu að framkvæmd kennslu í kynfræðslu og ofbeldisforvörnum á grunn- og framhaldsskólastigi

• láta vinna stöðukönnun á framkvæmd kynfræðslu í grunn- og framhaldsskólum þar sem m.a. komi fram viðhorf skólastjórnenda, nemenda og kennara

• taka afstöðu til hvort og þá hvaða breytingar þurfi að gera á aðalnámskrám grunn- og framhaldsskóla, á inntaki kennaramenntunar, hlutverki skólahjúkrunarfræðinga, námsráðgjafa og tómstundafræðinga til að kynfræðsla á þessum skólastigum verði með fullnægjandi hætti

• gera tillögur um með hvaða hætti best sé að miðla fræðslu um kynlíf og kynheilbrigði

Áherslur hópsins munu taka mið af aðgerðum sem fjallað er um í þingsályktun um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess og þingsályktun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni.

Fjögur í hópnum eru skipuð án tilnefningar en hin níu eru tilnefnd af opinberum stofnunum eða samtökum.

Hópurinn er þannig skipaður:

Sólborg Guðbrandsdóttir, fyrirlesari og formaður hópsins, án tilnefningar,

Sigríður Dögg Arnardóttir kynfræðingur og rithöfundur án tilnefningar,

Sóley Sesselja Bender, prófessor og forstöðumaður fræðasviðs um kynheilbrigði í Háskóla Íslands, án tilnefningar,

Unnur Þöll Benediktsdóttir, án tilnefningar,

Sigurþór Maggi Snorrason, Samband íslenskra framhaldsskólanema,

Ingólfur Atli Ingason, Samfés - landssamtök félagsmiðstöðva og ungmennahúsa á Íslandi,

Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, Samband íslenskra sveitarfélaga,

Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, Kennarasamband Íslands

Sigrún Sóley Jökulsdóttir, Menntamálastofnun,

Ása Sjöfn Lórensdóttir, Þróunarmiðstöð heilsugæslunnar,

Ingibjörg Guðmundsdóttir, Embætti landlæknis,

Þóra Björt Sveinsdóttir, Stígamót,

Indíana Rós Ægisdóttir, Kynís – Kynfræðifélagi Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×