Meistarataktar Bodø en Strømsgodset varð af mikilvægum stigum Anton Ingi Leifsson skrifar 6. desember 2020 17:55 Hægri bakvörðurinn, Alfons, í leik með Bodø fyrr á leiktíðinni. Hann hefur slegið í gegn á leiktíðinni í meistaraliðinu. Heimasíða BODØ Margir íslenskir leikmenn voru í eldlínunni í norska boltanum í dag.
Alfons Sampsted spilaði allan leikinn fyrir Bodø/Glimt sem sýndi meistaratakta í 5-2 sigrinum á Stabæk á heimavelli í þriðju síðustu umferð norsku úrvalsdeildarinnar. Bodø er með 75 stig á toppi deildarinnar en Molde sem er í öðru sætinu er með 53 stig. Alfons kom ekki að einu af mörkum Bodø í dag sem varð norskur meistari í síðasta mánuði. Jón Guðni Fjóluson spilaði allan leikinn í 1-1 jafntefli Brann gegn Sarpsborg. Brann er í ellefta sætinu með 32 stig. Jóhannes Harðarson og lærisveinar í Start töpuðu 1-0 fyrir Mjöndalen á útivelli. Start er í 13. sætinu en fjórtánda sætið fer í umspil um sæti í deildinni á næstu leiktíð. Start er stigi á undan Strømsgodset sem gerði 2-1 jafntefli gegn Haugesund. Valdimar Ingimundarson spilaði í 71 mínútu en Ari Leifsson kom inn á síðustu tuttugu mínúturnar. Viðar Ari Jónsson spilaði í 25 mínútur og Emil Pálsson tíu mínútur er Sandefjord gerði 2-2 jafntefli við Víking í Íslendingaslag. Samúel Kári Friðjónsson spilaði allan leikinn fyrir Viking en Axel Óskar Andrésson var ónotaður varamaður. Viking er í 6. sætinu með 43 stig en Sandefjord er með 32 stig í ellefta sætinu.
Norski boltinn Mest lesið Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið Körfubolti „Við vorum taugaóstyrkir“ Fótbolti Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Enski boltinn Cullen stormaði út af blaðamannafundi Sport Útsalah á mörkum í Lundúnum Enski boltinn Luke Littler grét eftir leik Sport Fleiri fréttir Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City Hólmbert og félagar náðu ekki að vinna fallslaginn Nú verður hægt að vinna Beckenbauer bikarinn Messi með eigin treyjur upp um alla veggi á heimilinu Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Sjá meira