Conte gæti sagt upp í næstu viku Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 23. ágúst 2020 13:30 Conte er mögulega á förum frá Inter. Vísir/Getty
Heimildir herma að Ítalinn Antonio Conte – þjálfari Inter Milan – gæti rift samningi sínum við félagið í næstu viku. Massimiliano Allegri, landi hans, er talinn líklegur til að taka við. Daily Mail greinir frá. Er ástæðan talin slæmt tap Inter gegn Sevilla í Evrópudeildinni og mögulega sú staðreynd að Conte missti stjórn á skapi sínu er Éver Banega, leikmaður Sevilla, gerði grín að hári Conte. Í kjölfar 3-2 tapsins gegn Sevilla viðurkenndi Conte að hann gæti yfirgefið félagið. Þá ku Conte hafa gefið út að hann hafi áhuga á að þjálfa Manchester United en það verður að teljast ólíklegt að það gerist á næstunni. Talið er að stirt samband Conte og forráðamanna Inter spili stærstan þátt í ákvörðun hans en Inter náði ásættanlegum árangri á leiktíðinni þó svo að félagið hefði viljað vinna Evrópudeildina. Massimiliano Allegri er langlíklegastur til að taka við starfi Conte en Allegri er jú maðurinn sem tók við af Conte er hann hætti með Juventus árið 2014. Hann hefur ekki þjálfað síðan hann yfirgaf Juventus síðasta sumar. Alls vann hann 11 titla með Juventus en tapaði úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu tvívegis. Undir stjórn Conte endaði Inter í 2. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar, aðeins stigi á eftir Ítalíumeisturum Juventus.
Fótbolti Ítalski boltinn Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember Körfubolti Russell á ráspól í fyrramálið Formúla 1 Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Fótbolti Andy Murray þjálfar erkióvininn Sport Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Íslenski boltinn Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Fótbolti Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Fótbolti Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Annað áfall fyrir Hörð sem fór til sama læknis og Rodri Ísland mætir Kósovó í sérstöku umspili Írarnir hans Heimis mæta Búlgörum Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Sjá meira