Bifhjólamenn vilja sjá tafarlausar aðgerðir í vegamálum Jóhann K. Jóhannsson skrifar 30. júní 2020 20:00 Sniglar mótmæla vegna banaslyss á Kjalarnesi Vísir/Vilhelm
Á þriðja hundrað bifhjólamanna komu saman við höfuðstöðvar Vegagerðarinnar í dag til að krefjast bættra vega. Mínútu þögn var vegna fallinna bifhjólamanna í umferðinni. Vegagerðin hefur fengið á sig harða gagnrýni eftir hörmulegt umferðarslys á Vesturlandsvegi um Kjalarnes þegar bifhjólamenn lentu í árekstri við húsbíl með þeim afleiðingum að tveir létust og einn slasaðist. Vegagerðin hefur þegar viðurkennt að malbik á umræddum vegarkafla var ekki samkvæmt stöðlum og voru fleiri vegakaflar teknir til skoðunar. Þegar hefur verið brugðist við með aðgerðum. Umræddur vegarkafli á Kjalarnesi var sandborinn í gær, þá var nýtt malbik á Höfðabakka við Gullinbrú fræst af og þá á að laga slitlag á Reykjanesbraut við Vífilstaði. Bifhjólamenn kröfðust þess í dag að gripið yrði strax til aðgerða á fleiri stöðum. Komu þeir saman eftir hádegi við höfuðstöðvar Vegagerðarinnar þar sem lesin var upp yfirlýsing og svo var mínútu þögn. Bergþóra Þorkelsdóttir stóð með bifhjólamönnum á samstöðufundinum.Vísir/Vilhelm „Við erum búin að fá nóg“ „Hörmulegur atburður hefur orðið til þess að öll sem eitt höfum við risið upp og segjum öll hið það sama. Við erum búin að fá nóg,“ sagði Jokka G. Birnudóttir, í stjórn Sniglanna, í yfirlýsingu sem lesin var upp í upphafi fundarins. „Þetta hljómar mjög illa. Þessar fréttir um hvernig malbikið er sett saman eru eiginlega fjarstæðukenndar að maður áttar sig ekki alveg á þessu,“ sagði Hrafnkell Sigtryggsson, bifhjólamaður sem mætti á fundinn. „Þetta eru of miklar fórnir sem eru færðar fyrir einhverja tilraunastarfsemi hjá Vegagerðinni. Það er bara ekki boðlegt,“ sagði Halldór Sigtryggson, bifhjólamaður sem mætti á fundinn og vill sjá aðgerðir strax. „Það er þetta sama malbik út um allt. þetta er ömurlegt. Það er búið að benda þeim á þetta í mörg ár,“ sagði Kristrún Tryggvadóttir, bifhjólamaður sem sagði hafa lent í sambærilegum aðstæðum og voru á veginum um Kjalarnes um helgina. „Já og þetta er alltaf þegar maður sér þetta að þá bregst maður við og fer ofur varlega,“ sagði Kristrún. Á þriðja hundrað bifhjólamenn mættu á samstöðufund þar sem krafist var tafarlausra aðgerðaVísir/Vilhelm Bifhjólamenn gagnrýndu Vegagerðina einnig fyrir viðbragðsleysi við umkvörtunum á síðustu árum. Er það viðurkennt að hálfu Vegagerðarinnar að svo sé? „Ég get svo sem ekki gefið komment á það, ég verð bara að segja eins og er. Þarna erum við bara með einstakar aðstæður sem eru sérlega erfiðar og óásættanlegar að okkar mati. Við vitum hins vegar að malbik í rigningu er hált þó að það sé ekki umfram þá staðla sem settir eru og verður alltaf viðsjárvert. Ný lagt malbik er hálla en annað malbik það er staðreynd en þessi tiltekni kafli hann umfram það sem við getum sætt okkur við,“ sagði Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar.
Samgöngur Samgönguslys Umferðaröryggi Tengdar fréttir Segir nánast allt að sem við kemur malbikun „Þegar maður horfir á þessi mál og sér hvernig aðrar þjóðir gera þetta þá bara erum við bara að sjá allt aðra afurð hér þegar við tölum um slitlag á vegum,“ segir Ólafur Guðmundsson umferðarsérfræðingur Bítisins á Bylgjunni í þættinum í morgun. 30. júní 2020 13:06 Samgönguáætlun næstu fimmtán ára samþykkt á Alþingi Tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir tímabilið 2020-2034 var samþykkt í gærkvöldi á Alþingi með 55 samhljóða atkvæðum. 30. júní 2020 11:00 Ætla að malbika upp á nýtt á Kjalarnesi eftir banaslysið Vegagerðin ætlar að leggja nýtt malbik yfir kafla á Kjalarnesi þar sem nýlagt malbik stenst ekki staðla og útboðsskilmála um viðnám. Tveir létust í árekstri húsbíls og bifhjóls á veginum í gær. 29. júní 2020 16:31 Mest lesið „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Innlent Allt að tuttugu stiga hiti í dag Veður N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri Innlent Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Innlent Eldur kviknaði inni á veitingastað í Ármúla Innlent Miklar framkvæmdir á Kirkjubæjarklaustri fyrir unga fólkið Innlent Yfirgáfu skarkalann í borginni og gerðust ferðaþjónustubændur Innlent Fannst fyrir botni Birnudals Innlent Annríkt hjá lögreglu á stærsta degi Írskra daga Innlent Fleiri fréttir Segir nánast alla atvinnustarfsemi á Akranesi farna Útilokar ekki kosningu en Jón vill kjósa áður en það verður of seint Íbúum í Árborg fjölgar um 600 til 700 á ári Reikna með að hefja formlegar sameiningarviðræður í haust Annríkt hjá lögreglu á stærsta degi Írskra daga Lögregluaðgerðir í Rangárþingi og sameining Skorradals og Borgarbyggðar Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Miklar framkvæmdir á Kirkjubæjarklaustri fyrir unga fólkið Slökkviliðið kallað út vegna reyks á skemmtistað Sjö gistu fangageymslur á höfuðborgarsvæðinu í nótt Eldur kviknaði inni á veitingastað í Ármúla N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Tveir í haldi lögreglu vegna meintrar skotárásar Yfirgáfu skarkalann í borginni og gerðust ferðaþjónustubændur Uppgjöf eftir áratugabaráttu við kerfið og meint skotárás í Þykkvabæ Fannst fyrir botni Birnudals Segir menn hafa skotið á gröfumann við vinnu Fluttu sex á slysadeild eftir harðan árekstur í Breiðholti Umdeild starfsemi hafi ekki áhrif á neysluvatn íbúa Mikil stemning á Goslokahátíð í Vestmannaeyjum Göngumaðurinn fannst látinn „Ótrúlegt hvað er hægt ef maður hefur hugmyndaflugið“ 30 tilvik skráð: „Alltaf einhverjir sem fara út af sporinu“ Nýjar stofnanir hafi aðsetur á landsbyggðinni Maður handtekinn tvisvar í nótt fyrir sama brot Ná að stytta biðlista og kynjaskipta meðferðinni Kristrún segir mál sem skekið hafa Samfylkinguna ekki svarthvít Meira um ofbeldi og hótanir og starfsfólk upplifir óöryggi í vinnunni Sjá meira
Segir nánast allt að sem við kemur malbikun „Þegar maður horfir á þessi mál og sér hvernig aðrar þjóðir gera þetta þá bara erum við bara að sjá allt aðra afurð hér þegar við tölum um slitlag á vegum,“ segir Ólafur Guðmundsson umferðarsérfræðingur Bítisins á Bylgjunni í þættinum í morgun. 30. júní 2020 13:06
Samgönguáætlun næstu fimmtán ára samþykkt á Alþingi Tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir tímabilið 2020-2034 var samþykkt í gærkvöldi á Alþingi með 55 samhljóða atkvæðum. 30. júní 2020 11:00
Ætla að malbika upp á nýtt á Kjalarnesi eftir banaslysið Vegagerðin ætlar að leggja nýtt malbik yfir kafla á Kjalarnesi þar sem nýlagt malbik stenst ekki staðla og útboðsskilmála um viðnám. Tveir létust í árekstri húsbíls og bifhjóls á veginum í gær. 29. júní 2020 16:31