Torreira líður ekki lengur vel hjá Arsenal Anton Ingi Leifsson skrifar 18. nóvember 2019 19:00 Lucas Torreira í leik Arsenal gegn Leicester á dögunum. vísir/getty
Umboðsmaður Lucas Torreira, miðjumanns Arsenal, segir að leikmaðurinn sé ekki lengur ánægður hjá félaginu og framtíð hans sé undir Unai Emery, stjóra Arsenal. Úrúgvæinn var keyptur fyrir 26 milljónir punda 2018 en hann átti gott HM og var svo fastamaður á síðustu leiktíð. Á þessari hefur hann svo verið í miklum vandræðum með að fá spiltíma. Torreira hefur verið á eftir Matteo Guendouzi, Dani Ceballos, Granit Xhaka og Joe Willock í röðinni en Torreira hefur ekki spilað 90 mínútur í leik á tímabilinu það sem af er.Lucas Torreira "no longer at ease" at Arsenal - and his agent says it's down to Unai Emery https://t.co/QMrcrflQTQpic.twitter.com/8C3ydJCrZN— Mirror Football (@MirrorFootball) November 18, 2019 „Ég verð að segja að hlutverkaskipting hans hefur ekki verið góð. Honum líður ekki lengur vel og við vonumst til þess að hlutirnir breytist,“ sagði umboðsmaðurinn í samtali við Calciomercato. „Það er áhugi á Torreira, sér í lagi frá Spáni, en ég hef ekki sest niður með honum og talað við hann um félagaskipti. Það er vegna þess hve mikla virðingu við berum fyrir félaginu og framkvæmdarstjóranum.“ Umboðsmaðurinn bætti einnig við að Torreira hafi alist upp á Ítalíu og þeir myndu ekki útiloka félagaskipti til Ítalíu.
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Endurkoma hjá Dagnýju Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Ferguson saknar fótboltans Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Hafi snúist hugur og vilji nú fara til Liverpool Segir að hann myndi kýla netníðingana í nefið ef þeir stæðu fyrir framan hann Arteta með vondar fréttir af meiðslum Ødegaards Óviss um að hann sé velkominn á Oasis tónleikana Ten Hag rólegur þrátt fyrir fullkomið kvöld Lið Stefáns skoraði úr sextán vítum Auðvelt á Old Trafford gegn C-deildarliðinu Ten Hag aðvarar Antony: „Verður að vinna sér inn réttinn til að spila“ Liverpool birtir áður óséð efni frá Reykjavík: „Beið í sextíu ár eftir því að sjá þetta“ „Þú færð mikið borgað svo þú mátt ekki sýna tilfinningar“ Willum Þór og félagar lögðu Hollywood-lið Wrexham Höjlund enn fjarri góðu gamni en varnarþríeykið klárt í slaginn Englandsmeistarinn Ingle með slitið krossband Fannst mark Gabriels vera ólöglegt Sjá meira