Enski boltinn

Dauð­þreyttur á sömu spurningum: „Fólk heldur að það sé hægt að ýta á takka“

Sindri Sverrisson skrifar
Ange Postecoglou er trúr sinni sannfæringu og ætlar ekki að breyta leikaðferð sinni.
Ange Postecoglou er trúr sinni sannfæringu og ætlar ekki að breyta leikaðferð sinni. Getty/Marc Atkins

Ange Postecoglou, stjóri Tottenham, var bersýnilega pirraður þegar hann sat fyrir svörum á blaðamannafundi í gærkvöld, eftir 6-3 tapið gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Sky og fleiri miðlar segja Postecoglou hafa sýnt að hann sé orðinn dauðþreyttur á því að leikplan Tottenham undir hans stjórn sé dregið í efa.

Í sögu ensku úrvalsdeildarinnar, frá 1992, hafði Tottenham aðeins einu sinni áður fengið á sig sex mörk á heimavelli, þar til í gær. Þrátt fyrir mikil forföll, sérstaklega í vörn liðsins, mættu Tottenham-menn óhræddir gegn besta liði Englands og breyttu ekki út frá djörfu uppleggi sínu sem líkt og stundum áður á þessari leiktíð bjó til mýmörg tækifæri fyrir andstæðingana.

„Ég er búinn að vera mjög þolinmóður við að svara sömu spurningunum aftur og aftur síðustu átján mánuði. Ef fólk vill að ég breyti minni nálgun þá er það samt ekki að fara að gerast. Það er ástæða fyrir því sem við gerum. Við teljum að þetta hjálpi okkur að ná árangri,“ sagði Postecoglou.

Tottenham gaf einnig fjölda færa á sér gegn Manchester United í deildabikarnum í síðustu viku, en vann þó 4-3, og skammt er síðan liðið tapaði 4-3 gegn Chelsea á heimavelli.

Tottenham er nú í 11. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, en liðið hefur verið án miðvarða sinna Cristian Romero og Micky van de Ven vegna meiðsla. Bakvörðurinn Destiny Udogie var í hóp í gær en ekki tilbúinn í að byrja leikinn, og Ben Davies og markvörðurinn Guglielmo Vicario eru einnig á meiðslalistanum ásamt fleirum.

„Ef að fólk skilur ekki aðstæðurnar sem við erum í, þær áskoranir sem við glímum við sem lið og hópur, sem eru algjörlega augljósar... Ég skil að fólk haldi að það sé hægt að ýta bara á takka og breyta, og að það myndi gera okkur að öðru liði. En svona er þetta. Ég held bara áfram að einbeita mér að því að byggja upp betra lið. Á meðan verðum við að sætta okkur við þær áskoranir sem þessu ferðalagi fylgja,“ sagði Tottenham-stjórinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×