Innlent

Leituðu að eiganda hunds sem fannst í Svínahrauni

Kjartan Kjartansson skrifar
Hvutti bíður eiganda síns á lögreglustöðinni við Hverfisgötu.
Hvutti bíður eiganda síns á lögreglustöðinni við Hverfisgötu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú að eiganda hunds sem fannst nærri Litlu kaffistofunni í Svínahrauna snemma í morgun.

Vegfarandi sem átti leið fram hjá Litlu kaffistofunni í nótt eða snemma í morgun kom auga á hundinn og kom honum í hendur lögreglu, að því er kemur fram í færslu á Facebook-síður lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Hundurinn er nú í óskilum á lögreglustöðinni við Hverfisgötu í Reykjavík. Eigandi hans getur vitjað hans með því að hafa samband við lögreglu í gegnum símann 112.

Uppfært 23:36 Í nýrri færslu á Facebook-síðu sinni greinir lögreglan frá þeim gleðitíðindum að tekist hafi að hafa uppi á eiganda hundsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×