Stórtap í Svartfjallalandi Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 14. febrúar 2018 19:39 Úr fyrri leik liðanna í Laugardalshöllinni í vetur vísir/andri marinó
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta tapaði fyrir Svartfjallalandi ytra í kvöld í undankeppni Eurobasket kvenna 2019. Íslensku stelpurnar stóðu vel í heimakonum framan af í leik þar sem lítið var skorað fyrstu mínúturnar. Staðan var 12-14 fyrir Íslandi eftir fyrsta leikhlutann og skoraði Helena Sverrisdóttir 11 af stigum Íslands í fjórðungnum. Svartfellingar náðu að vinna annan leikhluta og fóru með fjögurra stiga forystu í hálfleikinn. Það var hins vegar algjört hrun hjá íslenska liðinu í þriðja leikhluta þar sem liðið skoraði aðeins þrjú stig, öll frá Helenu Sverrisdóttur á línunni. Á meðan skoruðu Svartfellingar 19 stig og var staðan orðin 54-34 í lok leikhlutans. Íslensku stigin í fjórða leikhluta voru einnig bara 3 á móti 15 stigum Svartfjallalands og lauk leiknum með 69-37 sigri. Helena Sverrisdóttir var lang atkvæðamest í íslenska liðinu með 22 stig, 9 fráköst og 3 stoðsendingar. Næst stigahæst var Elín Sóley Hrafnkelsdóttir með 8 stig. Dýrfinna Arnardóttir, Berglind Gunnarsdóttir og Hildur Björg Kjartansdóttir skoruðu allar eina körfu hver en fleiri leikmenn náðu ekki að skora fyrir Ísland. Ísland hefur nú tapað öllum fjórum leikjum sínum í A riðli undankeppninnar. Næsti leikur liðsins er gegn Slóvakíu í Laugardalshöll í nóvember.
Körfubolti Mest lesið Áhorfandi fékk sex milljónir fyrir ótrúlegt skot Fótbolti „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Enski boltinn „Væri gaman að spila við þá í hverri einustu viku” Íslenski boltinn Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni Enski boltinn Fær Njarðvík frekar stimpilinn? Íslenski boltinn Stillti upp fartölvu til að mótmæla Fótbolti Simeone kennir Courtois um ólætin Fótbolti Dagskráin í dag: Stúkan tæklar stóru málin og Guðrún gæti orðið meistari Fótbolti Uppgjörið: Valur - Víkingur 2-3 | Draumamark Tariks kom Víkingi á toppinn Íslenski boltinn Ólæti vörpuðu skugga á dramatískan borgarslag Fótbolti Fleiri fréttir Tryggvi með tíu í fyrsta leik Valsmenn neituðu að veita viðtöl „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Martin magnaður í fyrsta sigrinum „Einhver náttúrulegasta þrenna sem ég hef séð“ Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Uppgjörið: Keflavík - Þór Ak. 82-86 | Þór skellti meisturunum Knicks og Timberwolves opna leikmannamarkaðinn með látum Ísold eltir annan draum: „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka í lífinu“ Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Sjá meira