Fjöldi vinsælla vefsíðna mun mótmæla Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 11. júlí 2017 07:00 Sumir hafa gripið til internetbrandara, svokallaðra "memes“, til að verja nethlutleysi. Þessir brandarar eru þó ævafornir. Vísir/AFP
Allnokkrar vinsælustu vefsíðna heims, sem Íslendingar nota margir hverjir daglega, munu koma almenningi spánskt fyrir sjónir á morgun. Ætla eigendur þeirra að breyta síðum sínum til að mótmæla stefnu Bandaríkjastjórnar um að afnema hlutleysi á internetinu. Hlutleysi á internetinu er í grunninn sú stefna að internetþjónustuaðilar verði að gefa viðskiptavinum sínum jafnt aðgengi að öllum löglegum vefsíðum. Mega þeir því ekki hægja á aðgengi að ákveðnum síðum og krefja eigendur þeirra svo um háar fjárhæðir til að koma á óhindruðu aðgengi á ný. Á meðal vefsíðna sem taka þátt í aðgerðunum eru Amazon, Reddit, Netflix, Twitter, Airbnb, Dropbox, Spotify og Pornhub en í heildina eru síðurnar 198 talsins. Hinar tímabundnu breytingar á vefsíðunum felast í því að gefa notendum innsýn í hvernig netið gæti orðið ef af áformum Bandaríkjastjórnar verður. Munu eigendurnir því vísvitandi hægja á síðum sínum. Þótt hlutleysi á netinu yrði einungis afnumið í Bandaríkjunum myndi slíkt hafa áhrif á netnotkun Íslendinga. Fyrirtæki sem starfrækja smærri vefsíður gætu farið á hausinn, meðal annars vegna minnkandi umferðar.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Innlent „Það þarf að nýta auðlindir landsins, það er alveg ljóst“ Innlent Hefur sett saman um 100 módelbíla í Hveragerði Innlent Vandræðalegur starfsmaður rak Björn Leví burt frá vínbúðinni Innlent Dæmi um að menntaðir kennarar nái ekki endum saman Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Helgi hættur á Heimildinni Innlent Óvænt og taktískt útspil Sigurðar Inga Innlent Heita hertum reglum í hælisleitendamálum Erlent Fleiri þvottavélar en pólitíkusar á skjánum vikuna fyrir kosningar Innlent Fleiri fréttir Heita hertum reglum í hælisleitendamálum Ætlar ekki að leyfa Úkraínu að eignast kjarnorkuvopn Bar fram samsæriskenningar á fyrsta kosningafundinum Auðkýfingurinn ekki lengur grunaður um dauða eiginkonunnar Kim sagður ætla að senda tólf þúsund menn til Rússlands Telja árásir sænskra unglinga runnar undan rifjum Írana Hafa birt myndskeið af síðustu augnablikum Sinwar Dauði Sinwar tækifæri til að binda enda á stríðið Fall Sinwar „upphafið að endinum“ Staðfesta andlát leiðtoga Hamas Leiðtogi Hamas „líklega“ felldur „Einstök sýning“ á getu Bandaríkjanna í loftárásum Mætti á Fox í gær og á í viðræðum um viðtal við Rogan Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Banna Ítölum að finna staðgöngumæður erlendis Hundrað ára Carter búinn að kjósa Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Sagður ekki munu ráðast gegn olíu- né kjarnorkuinnviðum Kosningafundur breyttist í undarlegt diskótek Saka yfirvöld í Indlandi um ofbeldi og morð í Kanada Fyrrum Stasímaður dæmdur fyrir fimmtíu ára gamalt morð Taugaeitur til að drepa þúsundir manna skilið eftir á glámbekk Sjá meira