Innlent

Fleiri þvotta­vélar en pólitíkusar á skjánum vikuna fyrir kosningar

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Örn Úlfar Sævarsson er hugmyndasmiður hjá ENNEMM.
Örn Úlfar Sævarsson er hugmyndasmiður hjá ENNEMM.

Það er morgunljóst að fleiri þvottavélar á afslætti verða á skjám landsmanna vikuna fyrir kosningar en frambjóðendur. Þetta segir hugmyndasmiður á auglýsingastofu sem segir öll bestu auglýsingaplássin löngu uppbókuð.

Það sem mörgum finnst það skemmtilegasta við kosningabaráttur eru íburðarmiklar auglýsingar þar sem þingmenn og aðrir sem freista þess að komast inn á þing reyna að sannfæra kjósendur um að þeir séu alþýðulegir, heiðarlegir og séu hæfir til að stýra landinu.

Rúmur mánuður í kosningar og því óvíst hvort flokkarnir hafi tíma til að hlaða í áhrifamiklar auglýsingar.

„Já ég held að það sé alveg tími en vandamálið er, hvar ætlaru að birta þær?“ veltir Örn Úlfar Sævarsson, Hugmyndasmiður hjá ENNEMM upp í Kvöldfréttum Stöðvar 2.

Bestu plássin löngu farin

Tímasetningin kosninganna er nefnilega ekki sú besta upp á birtingar auglýsinga. Black Friday eða Svartur fössari er daginn fyrir kosningar með tilheyrandi auglýsingafargan og Cyber Monday tveimur dögum eftir kosningar.

„Þannig öll bestu auglýsingaplássin eru löngu löngu farin.“

Hann segir nánast útilokað fyrir flokkana að fá auglýsingar birtar rétt fyrir fréttir, kappræður eða Vikuna með Gísla Marteini. Einstaka skjáauglýsingar gætu þó verið lausar og slott í dagblaði.

Sú staða gæti því komið upp að nokkrum dögum fyrir kosningar, þegar sumir landsmenn vita ekkert hvað skal kjósa, verði meira framboð af upplýsingum um heimilistæki á afslætti en stefnumálum flokkana.

„Það er allavegana ljóst að það verða fleiri þvottavélar í framboði vikuna fyrir kosningar í auglýsingum heldur en pólitíkusar.“

Samfélagsmiðlarnir komi sterkir inn

Gamli tíminn þurfi því að mæta þeim nýja í baráttunni. Flokkarnir þurfi annars vegar að nýta samfélagsmiðla og standa gömlu góðu vaktina í anddyri verslanamiðstöðva.

„Séu að dreifa blómum og öðru fyrir framan verslanir og séu svolítið duglegir, það reynir þá á þessa frambjóðendur. Og ég held að það sé stórt tækifæri að vera með eitthvað áhugavert og skemmtilegt á samfélagsmiðlum. Það munu allir flokkarnir reyna það en ekki öllum takast það.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×