Fengu tólf tíma rútuferð sem refsingu frá eigandanum fyrir að láta sópa sér Tómas Þór Þórðarson skrifar 26. apríl 2017 13:30 Ekki flug heldur rúta. vísir/getty
Dimitris Giannakopoulos, eigandi gríska körfuboltaliðsins Panathinaikos, sendi leikmenn liðsins heim með rútu frá Istanbúl til Aþenu í gærkvöldi eftir að liðið féll úr leikí Meistaradeildinni. Giannakopoulos þráði að komast í Final Four-helgi Meistaradeildarinnar og lofaði leikmannahópnum að þeir myndu fá 250.000 evra bónus til að skipta á milli sín ef þeir kæmust í úrslitahelgina. Það tókst svo sannarlega ekki því liðið tapaði einvígi sínu á móti Fenerbache frá Tyrklandi í átta liða úrslitum Meistaradeildinnar, 3-0. Eftir að liðinu var sópað í gærkvöldi tók Giannakopoulos ákvörðun um að refsa leikmönnunum með rútuferð. Hann afpantaði flugið sem liðið átti að fara í eftir leikinn og sendi leikmennina, þjálfarana og starfsliðið í 1.000 kílómetra rútuferð frá Istanbúl til Aþenu en hún tekur um tólf klukkustundir. Panathinaikos er sigursælasta lið í sögu Meistaradeildarinnar en það hefur orðið meistari sex sinnum, síðast í Barcelona árið 2011 eftir sigur á Maccabi Tel Aviv frá Ísrael í úrslitaleiknum. Gríska stórliðið hefur aftur á móti ekki komist í undanúrslit og tekið þátt í úrslitahelginni síðan það hafnaði í fjórða sæti árið 2012 eftir tap fyrir Barcelona í leik um bronsið.Dimitris Giannakopoulos, eigandi Panathinaikos.vísir/getty
Körfubolti Mest lesið Áhorfandi fékk sex milljónir fyrir ótrúlegt skot Fótbolti „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Enski boltinn „Væri gaman að spila við þá í hverri einustu viku” Íslenski boltinn Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni Enski boltinn Fær Njarðvík frekar stimpilinn? Íslenski boltinn Stillti upp fartölvu til að mótmæla Fótbolti Simeone kennir Courtois um ólætin Fótbolti Dagskráin í dag: Stúkan tæklar stóru málin og Guðrún gæti orðið meistari Fótbolti Uppgjörið: Valur - Víkingur 2-3 | Draumamark Tariks kom Víkingi á toppinn Íslenski boltinn Ólæti vörpuðu skugga á dramatískan borgarslag Fótbolti Fleiri fréttir Tryggvi með tíu í fyrsta leik Valsmenn neituðu að veita viðtöl „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Martin magnaður í fyrsta sigrinum „Einhver náttúrulegasta þrenna sem ég hef séð“ Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Uppgjörið: Keflavík - Þór Ak. 82-86 | Þór skellti meisturunum Knicks og Timberwolves opna leikmannamarkaðinn með látum Ísold eltir annan draum: „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka í lífinu“ Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Sjá meira