Fótbolti

Þetta þarftu að vita um EM 2016

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íslensku strákarnir fagna hér sæti á EM 2016.
Íslensku strákarnir fagna hér sæti á EM 2016. Vísir/Vilhelm
Knattspyrnusamband Íslands hefur sent frá sér Fréttabréf vegna Evrópumótsins næsta sumar en þar verður íslenska karlalandsliðið með á stórmóti í fyrsta sinn.

Það eru 190 dagar í Evrópumótið en aðeins tíu dagar þangað til að verður dregið í riðla. Þá mun liggja fyrir hvaða lið munu mæta Íslandi á þessu sögulega móti í íslenskri íþróttasögu.

Hér fyrir neðan er eitt og annað úr Fréttabréfi Knattspyrnusambands Íslands þar sem farið er yfir upplýsingar sem hafa borist frá UEFA um mótið og aðdraganda þess.



Hvaða lið eru komin á EM og hvenær er dregið í riðla?

Þau lið sem hafa tryggt sér sæti í lokakeppninni eru ÍSLAND, Albanía, Austurríki, Belgía, Króatía, Tékkland, England, Frakkland (gestgjafar), Þýskaland, Ungverjaland, Ítalía, Norður Írland, Pólland, Portúgal, Írland, Rúmenía, Rússland, Slóvakía, Spánn, Svíþjóð, Sviss, Tyrkland, Úkraína og Wales. Alls 24 lið.

 

Liðin eru í fjórum styrkleikaflokkum í drættinum og fara Frakkar í A-riðil sem gestgjafar. Styrkleikaflokkarnir eru svona:

Styrkleikaflokkur 1:  Frakkland (gestgjafar), Spánn (Evrópumeistarar), Þýskaland, England, Portúgal og Belgía.

Styrkleikaflokkur 2: Ítalía, Rússland, Sviss, Austurríki, Króatía og Úkraína.

Styrkleikaflokkur 3: Tékkland, Svíþjóð, Pólland, Rúmenía, Slóvakía og Ungverjaland.

Styrkleikaflokkur 4: Ísland, Tyrkland, Írland, Wales, Albanía og Norður-Írland.

(Lið úr sama styrkleikaflokki geta ekki dregist saman)

 

Dregið verður í sex riðla. Tvö efstu liðin úr hverjum riðli fara beint áfram í 16-liða úrslit ásamt fjórum liðum með bestan árangur í 3. sæti riðlanna. Þar tekur við útsláttarkeppni en þau lið sem komast áfram fara í 8-liða úrslit o.s.frv.

Dregið er í riðla þann 12. desember og fer drátturinn fram í París.

Vísir/Vilhelm
Hvernig færðu miða?

Öll miðasala fer fram í gegnum miðasöluvef UEFA. Umsóknarglugginn fyrir miða til stuðningsmanna liðanna sem keppa á EM opnar 14. desember og stendur til 18. janúar 2016.

Frá 14. desember er s.s. hægt að sækja um miða á leiki á lokakeppni EM í gegnum miðasöluvef UEFA. Það er ekki nauðsynlegt að vera á meðal þeirra fyrstu til að sækja um miða (s.s. "fyrstir koma, fyrstir fá" gildir ekki), því allir sem senda inn umsókn eiga jafna möguleika á að fá miða, burtséð frá því hvenær umsóknin er send innan tímarammans. Það kemur svo í ljós í febrúar hverjir fá miða.  Ef eftirspurn er umfram framboð er dregið úr innsendum umsóknum og niðurstaða úr því happdrætti er þá kynnt umsækjendum í febrúar.

Allar upplýsingar er að finna á miðsöluvef UEFA og hvetjum við alla sem hafa í hyggju að fara á EM að skoða hann vel.

Smelltu hérna til að fara á miðasöluvef UEFA.

Smelltu hérna til að skoða algengar spurningar og svör á miðasöluvef UEFA.

Hvar er leikið?

Það er leikið à 10 leikvöngum í Frakklandi. Í Bordeaux, Lens, Lille, Lyon, Marseille, Nice, Saint-Denis, Saint-Etienne, Toulouse og París. Það kemur ekki í ljós fyrr en í drættinum þann 12. desember hvar Ísland mun leika í riðlinum en leikið verður í fleiri en einni borg.

Það má því búast við einhverjum ferðalögum á milli borga ef stuðningsmenn vilja sjá alla leiki Íslands í riðlakeppninni.

Smelltu hérna til að skoða leikvanga á EM 2016.

Vísir/Vilhelm
Fylgstu með EM 2016 á samfélagsmiðlum

Hægt er að fylgjast með framvindu mála sem tengjast EM 2016 á samfélagsmiðlum UEFA og KSÍ. Um 8 milljón manns eru fylgjendur eða vinir UEFA á Facebook, Twitter og Instagram. Einnig mælum við með að fólk noti #EURO2016 ef það setur inn efni sem tengist keppninni.

 

KSÍ mun reglulega birta fréttir og efni sem tengist EM 2016 á komandi mánuðum. Fylgist með à miðlum KSÍ en við erum á Facebook, Twitter, Instagram og YouTube.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×