Fótbolti

Lífs­nauð­syn­legur sigur hjá Ís­lendingaliði Düsseldorf

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ísak Bergmann Jóhannesson og félagar í Fortuna Düsseldorf unnu mikilvægan sigur í dag.
Ísak Bergmann Jóhannesson og félagar í Fortuna Düsseldorf unnu mikilvægan sigur í dag. Getty/Marius Becker/

Fortuna Düsseldorf vann 1-0 heimasigur á Jahn Regensburg í þýsku b-deildinni í fótbolta í dag.

Þetta var lífsnauðsynlegur fyrir Ísak Bergmann Jóhannesson, Valgeir Lunddal Friðriksson og félaga þeirra í Düsseldorf liðnu eftir erfiðar vikur að undanförnu.

Düsseldorf var búið að tapa tveimur leikjum í röð og hafði leikið þrjá leiki í röð án þess að fagna sigri. Þetta var því fyrsti sigur liðsins í heilan mánuð.

Düsseldorf komst upp í sjöunda sæti deildarinnar með sigrinum en liðið er þremur stigum frá þriðja sætinu sem gefur sæti i umspili um laust sæti í efstu deild.

Ísak Bergmann var i byrjunarliðinu og spilaði allan leikinn en Valgeir er frá vegna meiðsla.

Matthias Zimmermann skoraði mark Düsseldorf með marki á 41. mínútu eftir stoðsendingu frá Tim Oberdorf.

Hólmbert Aron Friðjónsson var í byrjunarliðinu hjá Preussen Münster sem vann 1-0 útisigur á Elversberg. Hólmbert var rekin af velli á 85. mínútu. Preussen Münste fór upp í fjórtánda sætið með þessum sigri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×