Fótbolti

Úkraína slapp með skrekkinn og komst á EM

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Andriy Yarmolenko skoraði aftur í kvöld.
Andriy Yarmolenko skoraði aftur í kvöld. vísir/getty
Úkraína er komið á EM i Frakklandi eftir dramatískt 1-1 jafntefli gegn Slóvenum á útivelli í kvöld.

Úkraína kom til Slóveníu með tveggja marka forskot í farteskinu. Slóvenar minnkuðu þð forskot í eitt mark strax á 11. mínútu með marki Botjan Cesar.

Þeir voru svo ansi nálægt því að skora annað og tryggja sér framlengingu. Það gekk þó ekki og Andriy Yarmolenko sá um að EM-farseðlarnir færu til Úkraínu er hann skoraði á sjöundu mínútu í uppbótartíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×