Fótbolti

Hilderbrand ætlar sér stóra hluti hjá Valencia

Hilderbrand ætlar að vinna sér sæti í byrjunarliði Valencia sem fyrst
Hilderbrand ætlar að vinna sér sæti í byrjunarliði Valencia sem fyrst NordicPhotos/GettyImages

Þýski landsliðsmarkvörðurinn Timo Hildebrand var kynntur til sögunnar sem nýr markvörður spænska liðsins Valencia í dag. Hann stefnir ótrauður á að velta Santiago Canizares úr sessi sem markvörður númer eitt hjá liðinu eftir að hann kom frá Stuttgart í dag.

"Það verður erfitt að koma hingað og vinna sér sæti í byrjunarliðinu en ég kom hingað til að berjast og það er sú áskorun sem ég var að leitast eftir," sagði Þjóðverjinn við komu sína til Spánar í dag. Hann undirritaði þriggja ára samning við spænska stórliðið og verður í hitanum á næstu leiktíð eftir góð ár hjá Stuttgart í Þýskalandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×