Körfubolti

Risaleikur Wembanyama dugði ekki til

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Victor Wembanyama skoraði 42 stig og tók 18 fráköst fyrir San Antonio Spurs.
Victor Wembanyama skoraði 42 stig og tók 18 fráköst fyrir San Antonio Spurs. Emilee Chinn/Getty Images

Franski körfuboltamaðurinn Victor Wembanyama átti sannkallaðan risaleik fyrir San Antonio Spurs er liðið heimsótti New York Knicks í NBA-deildinni í körfubolta í kvöld. Það dugði þó ekki til og liðið þurfti að sætta sig við þriggja stiga tap, 117-114.

Wembanyama var að öðrum ólöstuðum besti maður vallarins í leik kvöldsins og skoraði 42 stig ásamt því að taka 18 fráköst fyrir gestina.

Það dugði þó skammt því Mikal Bridges var einnig í stuði í liði New York Knicks og skoraði 41 stig fyrir heimamenn.

Wembanyama og félagar höfðu yfirhöndina framan af leik og leiddu með sjö stigum þegar öðrum leikhluta lauk og liðin gengu inn í hálfleikshlé. Heimamenn í New York Knics snéru dæminu hins vegar sér í vil í þriðja leikhluta og náðu fjögurra stiga forskoti fyrir lokasprettinn.

Liðin skiptust á forystunni í lokaleikhlutanum, en að lokum voru það heimamenn í New York Knicks sem höfðu betur, 117-114.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×