Erlent

Rice til Moskvu

Rice á erfiða fundi fyrir höndum.
Rice á erfiða fundi fyrir höndum. MYND/AFP

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hélt í morgun áleiðis til Moskvu til viðræðna við þarlenda ráðamenn. Bilið á milli landanna tveggja virðist sífellt stækkandi og eiga viðræðurnar að reyna að bæta ástandið.

Yfirvöld í Kreml, sem Bandaríkin segja of valdagráðug, eru mjög óánægð vegna fyrirhugaðs eldflaugavarnarkerfis Bandaríkjanna en það á að reisa í Póllandi og Tékklandi. Þá eru ríkin ósammála um framtíð Kosovo. Bandaríkin þurfa þó á stuðningi Rússlands að halda í deilunni við Íran.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×