Erlent

Risi í álheiminum gangi kaup í gegn

Guðjón Helgason skrifar

Risi yrði til í álheiminum ef yfirtökutilboð Alcoa í álfélagið Alcan verður samþykkt. Tilboðið hljóðar upp á jafnvirði rúmlega tvö þúsund milljarða íslenskra króna. Nærri níu hundruð manns starfa nú hjá fyrirtækjunum tveimur hér á landi.

Rætt hefur verið um samstarf eða samruna fyrirtækjanna síðustu tvö ár en ekkert gengið í þeim viðræðum. Það var því sem Alcoa tilkynnti í dag að fyrirtækið hefði ákveðið að gera yfirtökutilboð í Alcan. Búist er við að það verði lagt á borðið á morgun. Tilboðið hljóðar upp á 33 milljarða bandaríkjadala, jafnvirði tæplega 2.100 milljarða íslenskra króna. Í fréttatilkynningu segir að greitt verði fyrir með reiðufé og hlutabréfum í Alcan.

Tilboðið er 20% yfir lokagengi bréfa í Alcan á föstudaginn.

Fulltrúar Alcan segja að stjórn fyrirtækisins fari yfir tilboðið og hvöttu hluthafa til að halda að sér höndum þangað til þeirri athugun verði lokið.

Verðmæti bréfa í Alcan hækkaði um 33% þegar fréttir af þessu bárust. Áður höfðu bréf í félaginu hækkað um 15% á síðustu tólf mánuðum. Verð á bréfum í Alcoa hækkaði um 6.3% í dag og hefur ekki verið hærra síðan í mars 2004.

Fram kemur á fréttavef Bloomberg í dag að eftirspurn eftir málmum hafi aukist á síðustu 12 mánuðum og nærri 500 samningar tengdir fyrirtækjum á þessu sviði því gerði á þeim tíma.

Alain Belda, framkvæmdastjóri Alcoa, segir fyrirtækið nú ætla að einbeita sér að álframleiðslu sem skili mestum hagnaði. Jaðarrekstur verði seldur. Alcoa-menn telja að með kaupum á Alcan spari þeir einn milljarð bandaríkjadal á þremur árum.

Alcoa var stærsti álframleiðandi í heimi þar til í mars þegar Rusal í Rússlandi sameinaðist OAO Sual Group og álhluta Glencore í Sviss. Alcoa, með Alcan innaborðs, framleiðir um 7.8 milljón tonn af áli á ári og selja ál fyrir jafnvirði tæplega 3.500 milljarða íslenskra króna.

Bæði fyrirtækin eru með starfsemi á Íslandi. Alcan í Straumsvík og Alcoa í Reyðarfirði. Hjá Alcoa eru þrjú hundruð áttatíu og þrjú stöðugildi hér og hjá Alcan fjögurhundruð og sjötíu starfsmenn.

Kevin G. Lowery, upplýsingafulltrúi Alcan í Bandaríkjunum, á ekki von á að kaupin hafi áhrif á rekstur fyrirtækjanna hér á landi. Markmiðið sé að stækka en ekki minnka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×