Erlent

Páfinn fékk bangsa

Benedikt páfi fékk margar afmælisgjafir.
Benedikt páfi fékk margar afmælisgjafir.

Benedikt 16 páfi fékk margar góðar afmælisgjafir á áttræðis afmæli sínu. Mest fékk hann af kortum, blómum og hljómdiskum. En einn óþekktur Ítali sendi honum risastóran bangsa. Ritari páfa sagði að bangsinn hefði verið afskaplega fallegur. Aðrir hefðu þó meiri þörf fyrir að knúsa bangsa og því hefði páfi sent hann á barnasjúkrahús í Róm.

Þar var hann heldur betur knúsaður og öll börnin skrifuðu undir afmæliskort sem þau sendu svo Benedikt, í þakkarskyni. Í kvöld verða haldnir klassiskir tónleikar í páfagarði, afmælisbarninu til heiðurs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×