Erlent

Brú sprengd í Bagdad

Brúin sem sprengd var í loft upp í morgun.
Brúin sem sprengd var í loft upp í morgun. MYND/AFP

Sjálfsmorðssprengjumaður sprengdi sig í loft upp á brú yfir Tígrisfljót í Írak í morgun. Að minnsta kosti 10 létu lífið og 26 særðust í sprengingunni. Sprengingin eyðilagði brúnna að hluta til og féllu bílar af henni í fljótið. Árásin átti sér stað á háannatíma en brúin tengir saman tvö hverfi Bagdad.

Brúin sem var sprengd er ein af þeim elstu og hæstu sem eru yfir Tígrísfljótið. Fljótið Tígris liðast í gegnum Bagdad og eru um tíu brýr sem brúa hana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×