Fótbolti

Laporta hlakkar til að heimsækja Bítlaborgina

Barcelona á titil að verja í Meistaradeildinni
Barcelona á titil að verja í Meistaradeildinni NordicPhotos/GettyImages

Joan Laporta, forseti Barcelona, segir að enska liðið Liverpool sé sannkallaður óskamótherji í næstu umferð Meistaradeildarinnar og segist ekki geta beðið eftir að heimsækja Bítlaborgina þegar Evrópumeistarar síðustu tveggja ára reyna með sér í 16-liða úrslitunum.

"Þetta verða leikir meistara tveggja síðustu ára og því verða þetta frábærir leikir. Ég er mjög ánægður með að mæta Liverpool og óskaði þess raunar að við lentum gegn þeim á þessu stigi keppninnar. Liverpool er mjög sterkt lið og þar eru líka leikmenn eins og Luis Garcia og Xabi Alonso sem við þekkjum vel. Það verður sannarlega gaman að fara til Bítlaborgarinnar, því ég hef mjög gaman af Bítlunum sjálfur og ætla að skoða borgina vel," sagði forsetinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×