Fótbolti

Svein­dís fun­heit inn af bekknum og setti tvö

Siggeir Ævarsson skrifar
Sveindís Jane í leik gegn Róma í Meistaradeildinni fyrr í haust
Sveindís Jane í leik gegn Róma í Meistaradeildinni fyrr í haust Vísir/Getty

Sveindís Jane Jónsdóttir átti heldur betur sterka innkomu af bekknum hjá Wolfsburg í dag en hún skoraði tvö mörk í 1-4 sigri liðsins á Mainz í þýska bikarnum.

Sveindís kom inn á í stöðu 1-0 á 73. mínútu en algjör viðsnúningur varð á leiknum í kjölfarið. Lineth Beerensteyn jafnaði metin á 82. mínútu og á þeirri 86. kom Sveindís Wolfsburg 1-2 yfir. Hún kórónaði svo glæsilega innkomu sína með síðasta marki leiksins þegar langt var komið fram í uppbótartíma.

Mörkin tvö eflaust kærkomin fyrir Sveindísi sem var utan hóps í Meistaradeildinni í vikunni vegna veikinda en stimplaði sig væntanlega aftur inn í liðið með látum með þessari frammistöðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×