Innlent

14 milljarða afgangur

Borgarsjóður verður rekinn með 14 milljarða afgangi á næsta ári, í stað eins milljarðs halla á þessu ári, segir borgarstjóri sem kynnti fjárhagsáætlun borgarinnar í dag. Bókhaldsleikir, segir oddviti Samfylkingar. Hann segir útgjöld aukast umfram tekjur.

Áætlunin var kynnt um hádegið og síðan tekin til umræðu á borgarstjórnarfundi nú síðdegis. Samkvæmt áætluninni munu hreinar skuldir hjá helstu sjóðum borgarinnar lækka um 28,2 milljarða króna og peningaleg staða, að undanskilinni lífeyrisskuldbindingu verður 4,6 milljarðar en það er í fyrsta sinn í mörg ár sem sú tala er jákvæð, segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri. Hagnaður um 13,7 milljarða króna kemur að mestu leyti til vegna sölu á hlut borgarinnar í Landsvirkjun en fyrir hann fékk borgin 10 milljarða eitt hundrað og fimmtíu milljónir króna. Borgarstjóri segir ýmislegt þurfa að lagfæra í fjármálastjórn borgarinnar en stefnan sé að ná jafnvægi á kjörtímabilinu. "Stöðunni verður ekki breytt á einni nóttu, við fórum í miklar hagræðingaraðgerðir í sumar og tókst að hagræða um 700 milljónir," segir Vilhjálmur.

Útsvar verður óbreytt, fasteignaskattar lækka um 10% og svo aftur um 5% síðar á kjörtímabilinu og svo þarf að efna kosningaloforð. En þarf þá ekki að skera einhvers staðar niður? "Það eru gríðarlega miklir möguleikar á að hagræða og spara án þess að minnka þjónustuna," segir Vilhjálmur.

Bókhaldsleikir segir Dagur B. Eggertsson oddviti Samfylkingar og bendir á að rekstrarútgjöld aukast umfram skatttekjur á áætluninni, þar af hækki reksturinn mest á skrifstofum í ráðhúsinu, eða um 16%. Dagur segir helstu pólitísku skilaboð áætlunarinnar vera gjaldskrárhækkanir. Hreinar skuldir borgarsjóðs hafi lækkað úr fimmtán milljörðum í ekkert hjá fyrri meirihluta og borgarstjóri hafi breitt yfir bólgnun í rekstri borgarinnar á fundinum í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×