Innlent

Meirihlutaviðræðum miðar áfram í Árborg

Vel miðar í samningaviðræðum Framsóknar, Samfylkingar og vinstri grænna í Árborg, en fundað hefur verið í allan dag eftir að slitnaði upp úr meirihlutasamstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknar vegna ágreinings um skipulags- og launamál. Framtíð bæjarstjóra Árborgar er mjög ótrygg takist minnihlutaflokkunum að mynda meirihluta bæjarstjórnar segir oddviti sjálfstæðismanna.

Fylkingarnar tvær hafa fundað stíft í dag og nú undir kvöld sátu forsvarsmenn minnihlutaflokkanna þriggja enn á fundi og munu halda áfram eftir stutt matarhlé. Þorvaldur Guðmundsson oddviti framsóknarmanna segir miða jákvætt áfram, en vildi ekki tjá sig frekar á þessu stigi.

Bæjarfulltrúar sjálfstæðisflokks hafa sömuleiðis fundað síft í allan dag, en þeir funduðu einnig með fulltrúarði sjálfstæðisfélaganna í Árborg sem harmaði ákvörðun B-listans um að slíta samstarfi.

Ágreiningur um skipulagsmál og launamál urðu meirihlutasamstarfinu að falli, og ganga ásakanir á víxl. Þórunn Jóna Hauksdóttir oddviti sjálfstæðismanna segir meirihlutaviðræður minnihlutans ekki vilja kjósenda.

Þórunn Jóna Hauksdóttir oddviti sjálfstæðismanna segir viðræður minnihlutaflokkanna ekki leggjast vel í sjálfstæðismenn. Hún telur það ennfremur svik við kjósendur sem kusu sjálfstæðisflokkinn með miklum meirihluta í sveitarstjórnarkosningunum í vor.

Þorvaldi finnst ásakanir sjálfstæðismanna um óheiðarleika í samstarfi sárar. Hann vísar því algjörlega á bug að framsókn hafi unnið í samstarfinu af óheilindum.

Núverandi bæjarstjóri er Stefanía Katrín Karlsdóttir, en hún fékk ópólitíska ráðningu og segir Þórunn framtíð hennar afar ótrygga ef minnihlutanum tekst að mynda meirihluta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×