Fótbolti

Eiður stefnir á sigur í HM félagsliða

Eiði Smára er ætlað stórt hlutverk í leikjum Barcelona í kvöld og á þriðjudag.
Eiði Smára er ætlað stórt hlutverk í leikjum Barcelona í kvöld og á þriðjudag. MYND/Getty Images

Eiður Smári Guðjohnsen hjá Barcelona segir að hann og samherjar sínir stefni á sigur í Heimsmeistarakeppni félagsliða sem hefst í Japan þann 10. desember næstkomandi.

Barcelona hefur leik í undanúrslitum keppninnar og fer félagið til Japans með sitt sterkasta lið. "Okkur hlakkar mikið til þessarar keppni og búumst við erfiðum leikjum. Við þurfum að einbeita okkur fyrst að tveimur erfiðum leikjum í öðrum keppnum en vonandi komum við heim frá Japan með bikar í farteskinu," sagði Eiður Smári við Sky Sports.

Leikirnir tveir sem Eiður Smári á við eru gegn Levante í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld og Werder Bremen í Meistaradeildinni á þriðjudag. Báðir leikirnir eru í beinni útsendingu á Sýn og hefst sá fyrrnefndi kl. 20 í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×