Innlent

Verulegir gallar á matarskattsfrumvarpi

Mikið af sælgæti inniheldur engan eða lítinn sykur.
Mikið af sælgæti inniheldur engan eða lítinn sykur. MYND/Vísir

Samtök iðnaðarins segja verulega galla á frumvarpi ríkisstjórnarinnar um matarskatt. Engin rök séu fyrir því að sætindi og sælgæti beri áfram vörugjöld.

Frumvarpið felur í sér að öll matvæli eru sett í sama þrep virðisaukaskatts og felldur er niður verulegur hluti vörugjalda. Samtökin telja frumvarpið stórt skref í átt að einfaldara skattakerfi en ýmislegt mæli þó á móti því að sætindi og sælgæti beri áfram vörugjöld. Mikið af sælgæti innihaldi til dæmis engan eða lítinn sykur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×