Innlent

Telja núverandi varnafyrirkomulag ófullnægjandi

Góðar líkur eru á að norski flugherinn hefji reglubundið eftirlitsflug um íslenska lofthelgi. Danir, Bretar og Kanadamenn eru einnig áhugasamir um varnarsamstarf við Íslendinga. Fulltrúar stjórnarandstöðunnar segja að þetta sýni að samkomulag Íslands og Bandaríkjanna tryggi ekki varnir landsins.

Leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins lauk í dag en meðfram hefðbundnum fundarstörfum notuðu gestirnir tímann til ræða önnur mál. Þannig hittust þau Valgerður Sverrisdóttir og Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherrar Íslands og Noregs, í morgun og ræddu hugsanlegt varnarsamstarf ríkjanna. Lyktir fundarins voru að norskir embættismenn komi hingað til lands í desember til að kanna aðstæður á Keflavíkurflugvelli með það fyrir augum að hingað geti hafist reglubundið æfingaflug norska flughersins.

Valgerður ítrekar að málið sé enn á byrjunarstigi en engu að síður sé um mikilvægt skref að ræða. Þá ræddi utanríkisráðherra auk þess við Evrópumálaráðherra Bretlands, utanríkisráðherra Kanada og ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytis Danmerkur og var ákveðið að embættismenn ríkjanna hittust á næstu vikum til frekari viðræðna um hugsanlegt samstarf í öryggis- og varnarmálum. Geir H. Haarde forsætisráðherra fagnar þessum þreifingum og er ekki þeirrar skoðunar að þær skarist á við núgildandi fyrirkomulag á vörnum landsins, varnarsamkomulagið við Bandaríkjamenn tryggir varnir á ófriðartímum en Norðmenn geti haldið hér uppi eftirliti þegar friður ríkir.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir þessi orð forsætisráðherra afar athyglisverð og þessi tvískipting hafi ekki komið fram á sínum tíma þegar varnarsamkomulagið við Bandaríkin var kynnt á Alþingi. Af því megi draga þá ályktun að það samkomulag tryggi varnir landsins ekki nægilega vel.

Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri grænna, tekur í sama streng og segir einn þátt málsins vera þann að að Norðmenn ætli að seilast hér til áhrifa og það gegn greiðslu. Annar þáttur sé hversu ósamstíga ríkisstjórnin er í því, á meðan Geir leggi áherslu á samstarf við Bandaríkin horfi Valgerður til nágrannaþjóðanna í Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×