Innlent

Lögregla leitar manns sem áreitti unga stúlku

MYND/Guðmundur

Lögreglan í Reykjavík leitar nú karlmanns á miðjum aldri sem áreitti unga framhaldsskólastúlku kynferðislega við strætóskýli nálægt Laugalækjarskóla í morgun. Að sögn lögreglu átti atvikið sér stað á milli klukkan níu og tíu og er talið að maðurinn hafi berað á sér kynfærin fyrir framan stúlkuna. Atvikið hefur verið kært til lögreglu og stendur rannsókn þess yfir að hennar sögn. Ekki er vitað hver var þarna á ferð en skólayfirvöld í Laugalækjarskóla hafa beðið foreldra í hverfinu að vera á varðbergi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×