Innlent

Líðan fólks sem bjargað var úr eldsvoða óbreytt

MYND/NFS

Líðan mannsins og konunnar sem bjargað var úr eldsvoða í Ferjubakka í Reykjavík í fyrradag er óbreytt. Þeim er haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans. Konan, sem ofbeldismaður stakk með hnífi á Húsavík, er á batavegi. Hún var útskrifuð af gjörgæslu í fyrradag og er nú á almennri deild.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×