Fótbolti

Inter Milan er með besta hóp í heimi

Jose Mourinho
Jose Mourinho NordicPhotos/GettyImages

Jose Mourinho segir að þó vissulega verði Chelsea að teljast eitt af þeim liðum sem eru sigurstrangleg í meistaradeildinni í ár, séu að minnsta kosti tíu lið sem hafi alla burði til að vinna keppnina. Hann segir ítalska liðið Inter Milan vera með sterkasta leikmannahóp allra liða í heiminum í dag.

"Þegar haft er í huga hvaða leikmenn við keyptum í sumar er ekki annað hægt en að ætlast til þess að við verðum í baráttu um sigur í keppninni, en það eru að minnsta kosti tíu önnur lið sem eiga góða möguleika. Þegar kemur að breidd og gæðum á pappírunum, held ég að Inter sé með besta hóp í heimi í dag og Werder Bremen er sannarlega sterkasta liðið af þeim sem voru í þriðja styrkleikaflokki - þeir eru alls ekki hræddir við að mæta okkur og þetta verður gríðarlega erfiður leikur," sagði Mourinho, en Chelsea og Bremen eigast við í kvöld og verður leikurinn sýndur beint á Sýn Extra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×