Sport

Barca verður að bíða lengur

Valencia náði að fresta sigurhátið Barcelona um nokkra daga í það minnsta
Valencia náði að fresta sigurhátið Barcelona um nokkra daga í það minnsta NordicPhotos/GettyImages
Liðsmenn Valencia voru ekki á þeim buxunum að gefa Barcelona færi á því að landa deildarmeistaratitlinum í dag og tryggðu það að sigurhátíð Katalóníumannanna verður ekki strax með öruggum 3-0 sigri á botnliði Alaves á heimavelli sínum Mestalla. Barcelona hefur nú 8 stiga forskot á toppnum þegar þrjár umferðir eru eftir og getur tryggt sér titilinn með sigri á Celta á miðvikudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×