Erlent

Saddam Hussein dæmdur til dauða

Íbúar borgarinnar Samarra norður af Bagdad mótmæla dauðadómnum yfir honum í gær. Óttast er að dómurinn verði olía á eld átaka ólíkra fylkinga í landinu.
Íbúar borgarinnar Samarra norður af Bagdad mótmæla dauðadómnum yfir honum í gær. Óttast er að dómurinn verði olía á eld átaka ólíkra fylkinga í landinu. MYND/AP

Saddam Hussein, fyrrverandi Íraksforseti, var í gær dæmdur til dauða fyrir glæpi gegn mannkyni. Dómurinn leiddi til lykta fyrsta réttarhaldið af mörgum yfir einræðisherranum fyrrverandi, en það var fyrir ábyrgð hans á drápum á 148 manns í bænum Dujail árið 1982. Til drápanna var efnt í hefndarskyni fyrir tilraun til að ráða Saddam af dögum, sem rakið var til manna í Dujail sem voru virkir í andspyrnuhreyfingu gegn stjórn Saddams á sínum tíma.

Er dómurinn var kveðinn upp hrópaði Saddam „Guð er mikill“. Dauðadómar voru einnig kveðnir upp yfir hálfbróður hans og öðrum manni sem var háttsettur í Íraksstjórn á sínum tíma. „Lengi lifi (íraska) þjóðin og dauði yfir óvinum hennar. Lengi lifi hin dýrðlega þjóð, og dauða yfir óvinum hennar!“ hrópaði Saddam.

Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraksstjórnar, sem er sjía-múslimi, lýsti dómunum sem dómi sögunnar yfir heilu sögulegu tímabili. „Þetta er dómur yfir heilu myrku tímabili sem á sér ekki hliðstæðu í sögu Íraks,“ sagði hann. Réttarhaldið stóð yfir í níu mánuði og lauk fyrir meira en þremur mánuðum, en í millitíðinni er hafið annað réttarhald yfir Saddam og fleiri sakborningum, og snýst um fjöldamorð á Kúrdum með efnavopnum á níunda áratugnum.

Sumir lýstu áhyggjum af því að dauðadómarnir kynnu að verka sem olía á eld átaka stríðandi fylkinga trúar- og þjóðernishópa í Írak. Strax í gær brutust út átök í hverfi súnnía í norðurhluta Bagdad. Annars staðar í höfuðborginni skutu menn upp í loftið til að fagna dóminum.

„Þessi ríkisstjórn verður ábyrg fyrir afleiðingunum, dauða þeirra hundruða, þúsunda eða jafnvel hundruða þúsunda manna, hverra blóði verður úthellt,“ sagði Salih al-Mutlaq, stjórnmálaleiðtogi súnní-múslima, í samtali við sjónvarpsfréttastöðina al-Arabiya.

Á götum Dujail, þar sem um 84.000 manns búa, flestir sjíar, brutust út mikil fagnaðarlæti. Myndir af einræðisherranum fyrrverandi voru brenndar og ,mikið skotið upp í loftið.

Dauðadómarnir fara sjálfkrafa í áfrýjunarferli. Níu manna sérskipaður áfrýjunardómstóll hefur ótakmarkaðan tíma til að fara yfir dóminn.

Verði dómarnir staðfestir verður að framfylgja þeim innan 30 daga frá þeim úrskurði.

Talsmaður Evrópusambandsins hvatti til þess í gær að dauðadómunum yrði ekki framfylgt en talsmaður Hvíta hússins sagði Bandaríkjastjórn þess fullvissa að Bandaríkjaher muni, í félagi við írösk yfirvöld, geta ráðið niðurlögum átaka sem fylgja kunni í kjölfar dómsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×