Innlent

Stálu tveimur tonnum af kjöti

Tveimur tonnum af nýsjálensku nautakjöti og 30 til 40 kílóum af kanadískum humri hefur verið stolið úr vörugeymslu í Kópavogi að undanförnu. Tilkynnt var um þjófnaðinn í fyrradag en ekki liggur nákvæmlega fyrir hvenær kjötinu var stolið. Þó nokkrir hafa haft aðgang að vörugeymslunni og virðist sem þjófurinn hafi ekki brotið sér leið inn í geymsluna. Enginn liggur undir grun en lögreglan í Kópavogi rannsakar málið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×