Erlent

Serbar kjósa nýjan forseta

Eftir margar tilraunir tókst Serbum loksins að kjósa sér nýjan forseta í gærkvöldi. Boris Tadic heitir maðurinn og er hlynntur vesturlöndum og hófsamur. Kosning hans þykir benda til þess að almenningur vilji að Serbía bæti samskipti við Evrópusambandið og NATO og hafni þjóðernisöfgum sem einkenndu valdatíma Slobodans Milosevic. Frambjóðandi flokks hans hlaut um átta prósentu minna fylgi en Tadic en kjörsókn var afar slök eða fjörutíu og átta prósent.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×