Innlent

Segja verk­fall kennara skapa ójafnræði og ó­rétt­læti

Lovísa Arnardóttir skrifar
Stjórn foreldrafélags Áslandsskóla segist styðja verkfall kennara en gagnrýnir aðferðafræði þeirra.
Stjórn foreldrafélags Áslandsskóla segist styðja verkfall kennara en gagnrýnir aðferðafræði þeirra. Reginn

Foreldrafélag Áslandsskóla telur verkfallsaðgerðir Kennarasambands Íslands brjóta gegn grunngildum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna með því að mismuna börnum og skerða nám þeirra barna sem eru í verkfallsskólum. 

Þrír grunnskólar hófu verkfall 29. október sem stendur í þrjár vikur. Aðrir þrír grunnskólar hefja svo verkfall 25. nóvember. Einnig eru tímabundin verkföll í framhaldsskólum og ótímabundin verkföll í fjórum leikskólum. Samningsaðilar funduðu síðasta laugardag. Ekki hefur verið boðað til nýs fundar. 

Móðir barns í leikskólanum Drafnarsteini gagnrýndi aðgerðirnar með svipuðum hætti í aðsendri grein á Vísi í gær. Þar gagnrýndi hún það einnig að ekki hefði verið greint frá því hvernig skólarnir voru valdir.

Í yfirlýsingu frá foreldrafélaginu í Áslandsskóla segir að foreldrarnir virði rétt kennara til verkfallsaðgerða en að þau lýsi yfir gagnrýni á þá aðferðarfræði að vera í verkfalli í ákveðnum skólum, en ekki öllum.

Undir yfirlýsinguna skrifar stjórn foreldrafélagsins en í stjórninni eru þær Guðrún Heiða Sigurgeirsdóttir, formaður, Anna Sigríður Björnsdóttir, Kristbjörg Kristbergsdóttir, Imba Þórðardóttir, Inga Helga Sveinsdóttir, Berglind Ósk Alfreðsdóttir og Ingibjörg Gunnarsdóttir

„Slíkar aðgerðir skapa ójafnræði og óréttlæti gagnvart nemendum og fjölskyldum þeirra í þeim skólum sem valdir eru, án skýringa á grundvelli þess hvers vegna einir nemendur sæta skerðingum fram yfir aðra skóla á landinu,“ segir í yfirlýsingunni.

Staða nemenda erfið

Þá segir að stjórnin lýsi yfir áhyggjum af stöðu nemenda í skólanum og þá sérstaklega þeirra barna sem eru í viðkvæmri stöðu vegna félagslegra áskoranna eða áskoranna í námi.

„Þessar aðgerðir skapa óvissu og streitu fyrir fjölskyldur og raska skólastarfi í þeim skólum sem verða fyrir valinu, án nokkurrar skýringar á grundvelli þess hvers vegna nemendur Áslandsskóla skulu sæta þessum skerðingum fram yfir aðra.“

Foreldrafélagið bendir á að samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna eigi öll börn rétt á námi og vernd gegn mismunun. Barnasáttmálinn var lögfestur á Íslandi árið 2013.

„Foreldrafélagið telur að núverandi verkfallsaðgerðir gangi gegn þessum grunngildum með því að skerða nám nemenda í Áslandsskóla fram yfir önnur börn í þjóðfélaginu.“

Þá hvetja þau að lokum samningsaðila til að ná sáttum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×